Innlent

Hefðu viljað ljúka máli flugumferðarstjóranna fyrr

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia.
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia. Isavia

„Strax þegar við fréttum af þessu máli þá ákváðum við að færa til þessa starfsmenn og pössuðum að skilja að meinta gerendur og þolanda,“ segir Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS, um uppsögn tveggja flugumferðarstjóra sem grunaðir eru um að hafa brotið á tvítugum nemanda í flugumferðarstjórn.

Mennirnir tveir voru færðir í verkefnavinnu þegar rannsókn málsins hófst, ásamt tveimur öðrum starfsmönnum. Þegar á leið var um að ræða þriggja manna teymi; þeir tveir og ung kona, sem var aldrei upplýst um að mennirnir væru grunaðir um nauðgun. Flugumferðarstjórar sem fréttastofa hefur rætt við telja það sæta furðu að mennirnir hafi ekki verið sendir í tímabundið leyfi á meðan rannsóknin stóð yfir. Kjartan vill ekki meina að það hafi verið mistök að senda þá ekki í leyfi.

„Við hefðum viljað ljúka málinu fyrr en þetta var leiðin sem var farin. Málavextir urðu skýrir og þá sögðum við þeim upp en tryggðum á meðan þetta var í gangi að þeir væru ekki á sama stað og þolandi,“ segir Kjartan, spurður hvers vegna mennirnir hafi ekki verið sendir í leyfi. Þá hafi þeir verið í verkefnavinnu með þriðja aðila, en að sú vinna hafi að mestu farið fram að heiman vegna heimsfaraldursins.

Rannsókn lögreglu er lokið og var málið sent til héraðssaksóknara, þar sem það var fellt niður vegna skorts á sönnunargögnum. Sú niðurstaða var hins vegar kærð og er málið nú á borði ríkissaksóknara. Kjartan segir hegðun sem þessa ólíðandi og að þau skilaboð hafi verið send starfsfólki í dag.

„Það er verið að ræða við fólkið og vinna úr málinu. Við viljum auðvitað hafa sem best andrúmsloft hjá okkur og hópi flugumferðarstjóranna en auðvitað er mjög mikilvægt að við sýnum það að þetta sé ekki í boði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×