Sport

Dagskráin í dag: Golf og Pepsi Max deildin

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
HK heimsækir Fylki í Pepsi Max deild karla í kvöld.
HK heimsækir Fylki í Pepsi Max deild karla í kvöld. Vísir/Vilhelm

Golfið verður í forgrunni á sportrásum okkar í dag, ásamt því að einn leikur er á dagskrá í Pepsi Max deild karla.

Opna skoska mótið ríður á vaðið klukkan 11:30 á Stöð 2 Golf. Klukkutíma síðar hefst svo útsending frá Aramco Team Series frá London á Stöð 2 Sport 4.

John Deere Classic er svo á dagskrá klukkan 19:00 á Stöð 2 Golf, en það er hluti af PGA mótaröðinni. 

Klukkan 19:30 er það Marathon Classic sem er á dagskrá á Stöð 2 Sport 4, en það er að sjálfsögðu hluti af LPGA mótaröðinni.

Eins og áður segir er einn leikur í Pepsi Max deild karla á dagskrá, en það er viðureign Fylkis og HK. Útsending hefst klukkan 19:05 og verður sýnt frá leiknum á vefnum.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um beinar útsendingar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×