Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.
Lof
Líflína Skagamanna
Botnlið ÍA frækinn 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Vals í umferðinni og hélt sér í raun þar með á floti í deildinni. Enn eitt tapið hefði þýtt að Skagamenn væru sjö stigum frá öruggum sæti þegar níu umferðir væru eftir.
Róðurinn er enn þungur – fjögur stig í Stjörnuna og Keflavík – en leikmenn ÍA gáfu sjálfum sér, og félaginu, ákveðna líflínu með sigrinum.
Glæsimark Höskuldar
Höskuldur Gunnlaugsson tryggði Breiðablik 1-1 jafntefli gegn KR vestur í bæ. Blikar lentu undir en Höskuldur jafnaði með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu á 67. mínútu leiksins. Þó spyrnan hafi farið í „markmannshornið“ var hún hnitmiðuð, föst og svo gott sem óverjandi af þessu færi.
Markið stöðvaði eyðimerkurgöngu Breiðabliks gegn KR en fyrir leik umferðarinnar höfðu Blikar tapað sex leikjum í röð gegn lærisveinum Rúnars Kristinssonar.
Varamenn Víkinga
Það leit út fyrir að Víkingur ætlaði ekki að nýta sér tap Valsmanna er Sindri Þór Guðmundsson kom Keflavík yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Sóknarleikur Víkinga var heillum horfinn og það gekk lítið upp. Það er þangað til Arnar Gunnlaugsson ákvað að gera breytingar á sínu liði.
Kwame Quee hafði varla verið mínútu inn á þegar hann fór illa með varnarmenn Keflavíkur og negldi boltanum fyrir markið þar sem Nikolaj Andreas Hansen gat ekki annað en skorað.
Helgi Guðjónsson kom einnig inn af bekknum og hann tryggði sigur Víkings með glæsilegu marki. Magnús Þór Magnússon kom engum vörnum við er Helgi óð fram úr honum og negldi boltanum í netið. Gífurlega mikilvægt mark sem tryggði Víkingum 2-1 sigur og hélt lífi í toppbaráttu deildarinnar.
Færasköpun FH og frammistaða Arons
FH-ingar óðu hreinlega í færum gegn Fylki. Ef ekki hefði verið fyrir Aron Snæ Friðriksson í marki Fylkis hefðu heimamenn skorað fjögur eða fimm mörk í leiknum. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt …
Last
Færanýting FH
… og því er færanýting þeirra flokkuð undir last í þessari umferð. Fylkir hefði getað tekið forystuna snemma í síðari hálfleik þar sem FH var fyrirmunað að skora. Á endanum kom Steven Lennon boltanum yfir línuna og FH vann 1-0.
Varnarleikur Keflavíkur
Miðað við að Keflavík er í hörkubaráttu um að halda sæti sínu í deildinni þá má setja mörg spurningamerki við varnarleik þeirra í báðum mörkum Víkinga. Kwame rölti framhjá Ingimundi Aroni Guðnasyni líkt og hann væri keila í fyrra markinu. Í því síðara þá virtist Magnús Þór ætla að brjóta á Helga, hætti við og borgaði á endanum fyrir það.
Sofandaháttur HK
Hitinn á Akureyri virtist svæfa HK er liðið tapaði 2-0 gegn KA. Frammistaða gestanna úr Kópavogi var ekkert skelfileg en mark Ásgeirs Sigurgeirssonar eftir tæpan hálftíma kom eftir einhvern alslakasta varnarleik síðari ára hér á landi.
Markið má sjá í spilaranum hér að neðan en Guðmundur Benediktsson fór yfir það ásamt sérfræðingum Stúkunnar að leik loknum.
Kæruleysi Valsmanna
Valsmenn voru nýkomnir úr hörku Evrópuleik gegn stórliði Dinamo Zagreb þar sem Íslandsmeistararnir léku af krafti sem varla hefur sést hér á landi undanfarin ár. Þrátt fyrir tap stóð Valur sig með prýði. Það sama er ekki hægt að segja um leikinn upp á Skipaskaga í umferðinni.
Hvort þreytu var að kenna eða einfaldlega kæruleysi er óljóst en Heimir Guðjónsson var hundóánægður í leikslok. Hann var langt því frá sáttur með baráttuanda sinna manna – eða skort þar á – en bæði mörk ÍA komu eftir föst leikatriði.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.