Fyrsti sigur Brentford í efstu deild í 74 ár Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. ágúst 2021 20:55 Leikmenn Brentford fagna öðru marki sínu vel og innilega. Eddie Keogh/Getty Images Brentford tók á móti Arsenal í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 2-0, heimamönnum í vil, en þetta var fyrsti leikur Brentford í efstu deild síðan í maí árið 1947. Seinasti leikur Brentford í efstu deild var þann 26. maí árið 1947, en þá töpuðu þeir naumlega gegn mótherjum kvöldsins, Arsenal. Heimamenn náðu forystunni á 22. mínútu með marki frá Sergi Canos eftir stoðsendingu frá Ethan Pinnock. Staðan var 1-0 þegar flautað var til hálfleiks, og það átti ekki eftir að breytast fyrr en á 73. mínútu. Brentford átti þá innkast úti á vinstri kannti. Innkastið var tekið langt og boltanum tókst einhvern vegin að skoppa í gegnum allan pakkann þar sem að Christian Nørgaard mætti á fjærstöngina og stangaði boltann í netið. Arsenal menn voru þó ekki á eitt sáttir við það að markið fengi að standa það sem að Bernd Leno, markmanni Arsenal fannst vera haldið í sig. Markið fékk þó að standa og Brentford vann vægast sagt langþráðan 2-0 sigur í efstu deild Englands. The opening night is a perfect night 2-0 #BrentfordFC #BREARS pic.twitter.com/eJXDEt7sCZ— Brentford FC (@BrentfordFC) August 13, 2021 Fótbolti Enski boltinn