Innlent

Þrír fluttir á sjúkrahús á Akureyri eftir bílslys

Snorri Másson skrifar
Umferðarslys varð við Grjótá á Öxnadalsheiði í morgun.
Umferðarslys varð við Grjótá á Öxnadalsheiði í morgun. Skjáskot

Þrír voru fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akureyri með minni háttar meiðsl eftir bílslys varð á hringveginum við Grjótá á Öxnadalsheiði í morgun.

Slysið atvikaðist þannig að bifreið sem lagt hafði verið í vegarkant var að bakka aftur inn á hringveginn, þegar önnur kom á eftir og skall aftan í hina.

Önnur bifreiðin er að sögn lögreglunnar óökufær eftir slysið.

Öxnadalsheiði var lokað um stund eftir slysið en hefur verið opnaður aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×