Í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 frá Egilsstaðaflugvelli var rætt við Jónu Árnýju Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Austurbrúar, stofnunar sem sveitarfélögin á Austurlandi sameinast um til að efla samfélagið fyrir austan.
Jóna Árný var helsti hvatamaður þess að skoska leiðin yrði tekin upp í innanlandsflugi hérlendis, loftbrúin svokallaða, með niðurgreiðslu á flugfargjöldum til íbúa fjærst Reykjavík. Um þessar mundir er eitt ár er liðið frá því verkefninu var hleypt af stokkunum. En hvernig hefur til tekist?
„Þetta hefur bara gengið ótrúlega vel. Mikil ánægja meðal íbúa og sérstaklega yngri kynslóðarinnar, sem að við viljum náttúrlega halda í á okkar landsvæði til framtíðar á Austurlandi,“ svarar Jóna Árný og kveðst vonast til að framhald verði á og frekari uppbygging á því verkefni.

Austurbrú vinnur einnig að því að alþjóðaflugvöllurinn á Egilsstöðum nýtist fjórðungnum betur sem millilandaflugvöllur.
„Já, við köllum eftir því og höfum verið að vinna að því undanfarin ár að hérna verði uppbygging á gátt til landsins. Það skipti miklu máli, núna þegar covid fer að slota og flugumferð fer aftur af stað, að við fáum ferðamenn inn um Egilsstaðaflugvöll, í viðbót við Keflavíkurflugvöll og reyndar líka um Akureyrarflugvöll.
Þannig byggjum við upp ferðaþjónustu fyrir næstu umferð, ef svo má segja, og mikilvægt að við getum gert þetta almennilega.“

-En það er búið að tala um þetta lengi. Hvað þarf að gerast til að þetta fari í gang, að þið fáið alþjóðaflug hingað?
„Þetta er náttúrlega bara samvinnuverkefni margra að koma þessu á. Það er mikilvægt að það sé horft á þetta í því samhengi að við erum að byggja upp Ísland sem áfangastað.
Og áfangastaður sem er bara með eina gátt til landsins, - þegar við berum okkur saman við önnur lönd þar sem eru fleiri gáttir, - það skiptir máli að fá ferðamennina á sem flestum stöðum inn í landið,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir.
Hér má sjá útsendinguna frá Egilsstaðaflugvelli: