Viðskipti innlent

Frosti nýr fram­kvæmda­stjóri Olís

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum.

Í tilkynningunni kemur fram að Frosti búi að víðtækri reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi, hérlendis og erlendis, og hafi á síðustu árum meðal annars starfað sem forstjóri ORF líftækni og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. 

Hann lét af störfum hjá ORF líftækni í febrúar 2020 og þá kom fram að hann ætlaði að einbeita sér að fjölskyldu sinni og eigin verkefnum.

Áður starfaði Frosti sem ráðgjafi hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann vann að stefnumótun, rekstrargreiningum og umbreytingarverkefnum fyrir fjölda alþjóðlegra stórfyrirtækja. Þá hefur hann jafnframt setið í stjórnum ýmissa íslenskra fyrirtækja. Frosti hefur lokið MBA námi frá London Business School og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands.

„Frosti býr að víðtækri og farsælli reynslu af fyrirtækjarekstri, stefnumótun og umbreytingarverkefnum, bæði hér heima fyrir og erlendis. Hann þekkir einnig vel til starfsemi Olís og Haga eftir þátttöku í stefnumótunarvinnu á vegum félaganna síðustu misserin. Það er því sérlega ánægjulegt að fá Frosta til liðs við öflugt teymi hjá Olís, til að takast á við fjölbreytt og áhugaverð verkefni sem bíða félagsins. Það eru spennandi tímar framundan á eldsneytis- og þægindamarkaði, m.a. vegna orkuskipta og breyttrar neysluhegðunar viðskiptavina. Við bjóðum Frosta velkominn í hópinn og hlökkum til samstarfsins,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga hf.

Frosti segist hlakka til að hefja störf og vera þakklátur fyrir traust sem honum er sýnt.

„Olís er öflugt og rótgróið félag sem hefur spilað mikilvægt hlutverk á íslenskum eldsneytismarkaði í tæpa öld. Það er spennandi tækifæri að fá að leiða þetta sögufræga félag í gegnum þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað á eldsneytis- og þægindamarkaði. Ég hef fengið að kynnast Olís og Haga samstæðunni í gegnum ráðgjafastörf mín á undanförnum misserum og það er ljóst að starfsemin byggir á sterkum grunni og tækifærin framundan eru fjölþætt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×