Purdue viðurkenndi ábyrgð sína á ópíóðafaraldrinum árið 2019. Lyfjarisinn framleiðir deyfilyfið OxyContin og borgaði læknum lengi sérstaklega fyrir að skrifa upp á OxyContin lyfseðla auk þess að fyrirtæki sem heldur utan um rafrænar læknaskrár var borgað til að senda læknum upplýsingar um sjúklinga sem gerði þá líklegri til að skrifa út OxyContin til þeirra. Purdue viðurkenndi einnig á sínum tíma að hafa beint lyfjaspjótum sínum sérstaklega að fátækari samfélögum Bandaríkjanna. Fréttastofa AP greinir frá.
Samþykki dómarinn Robert Drain áætlanir Purdue og fylkja- og sveitarstjórnanna gæti það bundið enda á baráttu fyrir dómstólum sem gæti tekið fjölda ára til viðbótar. Samningurinn er metinn upp á tíu milljarða Bandaríkjadala, eða um 1,3 billjónir króna (1.268.800.000.000 kr.).
Sackler fjölskyldan, sem stofnaði fyrirtækið, þyrfti að gefa upp eignarhlut sinn í fyrirtækinu og borga 4,5 milljarð Bandaríkjadala. Eftir eignarskiptin yrði ágóða fyrirtækisins varið í að berjast gegn ópíóðafaraldrinum. Andstæðingar samkomulagsins gætu þó áfrýjað dóminum.
Ákveði dómarinn að samþykkja ekki samkomulagið, eins og nokkur fylkjanna og aðgerðasinnar krefjast, gæti málið orðið mun flóknara. Framhaldið yrði mjög óljóst. Stríðandi fylkingar gætu sest aftur niður að samningaborðinu og málsóknir gegn Purdue og Sackler fjölskyldunni myndu líklega hefjast að nýju.
Gangi það hins vegar í gegn að dómarinn samþykki samkomulagið, sem er í raun gjaldþrotayfirlýsing, verður það til þess að fyrirtækið og Sackler fjölskyldan þurfi að greiða brota brot af því sem þau þyrftu að greiða ef þau yrðu sakfelld fyrir dómstólum.
Í samkomulaginu er það jafnframt tryggt að ekki sé hægt að höfða málsókn gegn neinum meðlimi Sackler fjölskyldunnar í tengslum við ópíóða. Það þýðir ekki að saksóknarar geti ekki ákært fjölskyldumeðlimi, þar sem dómskerfið í Bandaríkjunum er tvískipt: annars vegar glæpadómstólar og hins vegar almennir dómstólar, sem taka fyrir einkarekin mál.