Fótbolti

Vilhjálmur Kári: Við klárum þetta á heimavelli

Andri Gíslason skrifar
Vilhjálmur Kári er þess fullviss að Breiðablik vinni síðari leikinn gegn Osijek og fari í riðlakeppnina.
Vilhjálmur Kári er þess fullviss að Breiðablik vinni síðari leikinn gegn Osijek og fari í riðlakeppnina.

Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks var sáttur með frammistöðuna sem lið hans sýndi í Króatíu í dag. Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við Króatíumeistara Osijek í fyrri leik umspils um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

„Mér fannst frammistaðan góð og við sterkari aðilinn það vantaði bara svolítið herslumunninn að klára þetta. Við eigum heimaleikinn eftir og ég er viss um að við klárum þetta þar.“

Blikaliðið spilaði vel en gekk samt ekki nógu vel þegar komið var á síðasta þriðjung vallarins.

„Það vantaði bara smá heppni, völlurinn var pínu erfiður og teigarnir ójafnir, boltinn var að detta svolítið illa fyrir okkur og það gerist þarna einu sinni þegar Tiffany fær sendingu frá Selmu en þetta kemur bara þegar við verðum á sléttu gervigrasinu.“

Karitas Tómasdóttir spilaði á miðjunni í dag og átti stórleik, Vilhjálmur var sammála því.

„Hún var mjög öflug í dag og svo átti Selma Sól einnig mjög góðan leik. Liðið var að spila mjög vel en það voru ein og ein mistök þar sem við vorum heppnar að okkur var ekki refsað.“

Breiðablik mætir Osijek aftur eftir rúma viku og nú þegar Vilhjálmur hefur séð liðið spila er hann meðvitaður um hvað þarf að passa í síðari leiknum.

„Þær eru með nokkra leikmenn sem eru góðar í fótbolta, við megum ekki missa þær framhjá okkur því þær eru bæði klókar og teknískar. Við þurfum að passa að þær fái ekki mikinn tíma á boltann þannig við þurfum að pressa þær vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×