NFL-deildin fer af stað 10. september þegar ríkjandi meistarar Tampa Bay Buccaneers mæta Dallas Cowboys. Verður deildin á sínum stað á Stöð 2 Sport.
Hér að neðan má sjá hvaða fimm leikmenn sérfræðingar ESPN telja að verði bestir í vetur. Á vef ESPN má í raun finna lista með þeim 100 leikmönnum sem munu skara fram úr. Alls komu 50 sérfræðingar að gerð listans.
Athygli vekur að Tom Brady er aðeins í 20. sæti og T. J. Watt, tengdasonur Íslands, er í 6. sæti.
Who will be the best players in the 2021 season?
— ESPN (@espn) August 30, 2021
We asked a panel of 50 experts to rank the top 100 https://t.co/dGm047fMGR pic.twitter.com/YhKxtyPiiZ
1.Patrick Mahomes (Kansas City Chiefs)
Hinn 25 ára Mahomes átti erfitt uppdráttar í leiknum um Ofurskálina þar sem varnarleikur Chiefs var ekki upp á marga fiska og leikstjórnandinn lunkni var einnig að glíma við meiðsli.
Chiefs hafa tekið til í varnarleiknum hjá sér og gætu alls hafa sótt fimm nýja byrjunarliðsmenn. Það má því ætla að Mahomes verði í banastuði í vetur.
2.Aaron Donald (Los Angeles Rams)
Hinn 30 Donald hefur þrívegis verið valinn varnarmaður ársins í deildinni. Hann varð þrítugur í sumar og hefur gefið það út að aldurinn sé farinn að segja til sín. Sérfræðingar ESPN telja það ekki að það muni hafa teljandi áhrif á frammistöðu hans í vetur.
3.Aaron Rodgers (Green Bay Packers)
Hinn 37 ára gamli Rodgers er enn í leit að sínum öðrum hring eftir að hafa stýrt Packers til sigurs árið 2010. Það er ljóst að Green Bay á mun meiri möguleika á að komast í leikinn um Ofurskálina með Rodgers innanborðs heldur en ekki. Líkurnar á að liðið komist í úrslitakeppnina eru 70 prósent með Rodgers sem leikstjórnandi en aðeins 24 prósent án hans.
4.Russell Wilson (Seattle Seahawks)
Hinn 32 ára gamli Wilson er enn einn leikstjórnandinn á listanum. Sérfræðingar ESPN telja að sóknarleikur Seattle muni ganga betur fyrir sig í vetur og hrunið á síðari hluta síðustu leiktíðar muni ekki hafa áhrif á frammistöðu Wison né liðsins í heild sinni.
5.Tyreek Hill (Kansas City Chiefs)
Hinn 27 ára gamli Hill er annar leikmaður Chiefs á topp fimm lista ESPN og ljóst að það er mikil pressa á liðinu. Hill er talinn með betri útherjum deildarinnar og án efa sá besti – enda sá eini – í leikmannahóp Chiefs.

NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.