Höfundur tónlistar Grikkjans Zorba er fallinn frá Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2021 08:09 Mikis Theodorakis á tónleikum við tröppur Akropólis í Aþenu árið 2001. EPA Gríska tónskálið Mikis Theodorakis, sem þekktastur er fyrir að hafa tónlist myndarinnar Grikkjans Zorba frá árinu 1964, er látið, 96 ára að aldri.
Grískir fjölmiðlar segja hann hafa andast í Aþenu í gær. Theodorakis naut mikillar virðingar og vinsælda í heimalandinu og er búið að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu vegna fráfalls hans. Theodorakis var virkur í andspyrnuhreyfingunni gegn hersetu nasista í Grikklandi á tímum seinna stríðs og átti síðar eftir að starfa sem þingmaður. Hann var sömuleiðis einn mest áberandi andstæðingur herforingjastjórnarinnar í Grikklandi á árunum 1967 til 1974. Í sögunni um Grikkjann Zorba var sagt frá enskum höfundi á Krít og hvernig líf hans umturnast þegar hann kynnist hins mannblendna bónda, Alexis Zorba. Kannast flestir við tónana sem spilaðir voru undir þar sem Zorba og enski höfundurinn dansa saman og sjá má að neðan. Kvikmyndin, sem skartaði leikaranum Anthony Quinn í aðalhlutverki, vann til þriggja Óskarsverðlauna á sínum tíma. Theodorakis samdi sömuleiðis tónlistina fyrir myndina Serpico frá árinu 1973.
Grikkland Andlát Bíó og sjónvarp Tónlist Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira