Innlent

Handtóku Covid-smitaðan mann í mjög annarlegu ástandi

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Vísir/Egill

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að sóttvarnarhúsi í nótt og handtók þar mann í mjög annarlegu ástandi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu en hann er grunaður um líkamsárás og eignarspjöll.

Þá gerðist hann brotlegur við sóttvarnalög, þar sem hann var með staðfest Covid-smit.

Lögregla handtók einnig mann sem var gripinn glóðvolgur við innbrot í skóla í miðborginni. Þá var einn handtekinn í Kópavogi í tengslum við rán og nytjastuld á ökutæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×