Fótbolti

Jóhann Berg og Alfreð eru hvorugur í landsliðshópnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason eru ekki með.
Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason eru ekki með. Vísir/Hulda Margrét

Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson hefur tilkynnt hvaða leikmenn verða í hópnum sem spilar tvo síðustu leiki sína í undankeppni HM nú í nóvember.

Arnar velur 24 leikmenn í hópinn en í honum eru ekki þeir Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason sem eru báðir búnir að ná sér af meiðslum.

Jóhann Berg, sem var fyrirliði íslenska landsliðsins í haust, gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni af því að hann var tæpur vegna meiðsla. Hann tjáði um leið óánægju sína og sagði að vinnubrögð KSÍ vikurnar á undan hafi haft áhrif á ákvörðun hans um að draga sig úr hópnum. Alfreð er nýbyrjaður að spila eftir langan meiðslatíma.

Guðlaugur Victor Pálsson er heldur ekki valinn í hópinn að þessu sinni en hann yfirgaf liðið í miðju síðasta verkefni.

Ísland mætir Rúmeníu og Norður Makedóníu en báðir leikirnir eru spilaðir erlendis. Liðið mætir Rúmeníu á National Arena í Bucharest fimmtudaginn 11. nóvember kl. 19.45 og Norður Makedóníu á National Arena Todor Proeski sunnudaginn 14. nóvember kl. 17:00.

Aðrir sem detta út úr hópnum frá síðasta verkefni eru þeir Jón Guðni Fjóluson, Hjörtur Hermannsson, Mikael Neville Anderson og Elías Már Ómarsson.

Inn í hópinn koma þeir Ísak Óli Ólafsson, Aron Elís Þrándarson og Arnór Ingvi Traustason.

  • Landliðshópurinn
  • Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 2 leikir
  • Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking
  • Rúnar Alex Rúnarsson - OH Leuven - 12 leikir
  • Alfons Sampsted - Bodö/Glimt - 6 leikir
  • Birkir Már Sævarsson - Valur - 102 leikir, 3 mörk
  • Brynjar Ingi Bjarnason - Lecce - 8 leikir, 2 mörk
  • Ari Leifsson - Stromsgodset - 1 leikur
  • Daníel Leó Grétarsson - Blackpool - 3 leikir
  • Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg - 1 leikur
  • Ari Freyr Skúlason - IFK Norrköping - 82 leikir
  • Guðmundur Þórarinsson - New York City FC - 10 leikir
  • Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 103 leikir, 14 mörk
  • Andri Fannar Baldursson - FC Köbenhavn - 8 leikir
  • Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar - 27 leikir, 6 mörk
  • Mikael Egill Ellertsson - SPAL - 2 leikir
  • Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg - 5 leikir, 1 mark
  • Aron Elís Þrándarson - OB - 6 leikir
  • Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 8 leikir, 1 mark
  • Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 5 leikir
  • Jón Dagur Þorsteinsson - AGF - 14 leikir, 1 mark
  • Arnór Ingvi Traustason - New England Revolution - 40 leikir, 5 mörk
  • Viðar Örn Kjartansson - Valerenga - 32 leikir, 4 mörk
  • Sveinn Aron Guðjohnsen - Elfsborg - 6 leikir
  • Andri Lucas Guðjohnsen - Real Madrid - 4 leikir, 2 mörk



Fleiri fréttir

Sjá meira


×