Umboðsmaður alþingis hóf frumkvæðisathugun sína á þessum málum um miðjan síðasta mánuð.
Hann kallaði eftir upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu og fjórum sveitarfélögum; Reykjavík, Akureyri, Mosfellsbæ og Hafnarfirði. Gögn hafa borist frá öllum nema Hafnarfirði sem bað um frest fram á miðjan þennan mánuð.

Í framhaldi verður svo kafað dýpra ofan í þessi mál og fleiri sveitarfélög og einstaka skólar skoðaðir sérstaklega.
„Auðvitað hljótum við að spyrja okkur hvort að þeir starfsmenn sem þarna eigi í hlut séu nægilega upplýstir og þekki nægilega þær heimildir sem þeir hafa þá og hafi þá fengið þjálfun í valdbeitingu og þegar hún er heimil, sem er auðvitað innan þröngra marka í grunnskólum,“ segir Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis.
Ormagryfjan sem opnaðist
Hálfgerð ormagryfja hefur opnast eftir að það komst í fréttir að athugunin væri í gangi hafa margir foreldrar stigið fram og sagt sögur af meðferð á börnum sínum í grunnskólum landsins.
Margir foreldrar sem hafa leitað til fréttastofu hafa þó ekki verið tilbúnir til að stíga fram undir nafni, barnanna vegna.
„Eftir u.þ.b. 20 mín þá segir A ef þið opnið ekki þá brýt ég rúðuna. Hann taldi upp í 3 og hafði góða pásu á mill, og byrjaði svo að berja í rúðuna."
Eitt foreldrið sýndi fréttastofu þessa atvikalýsingu úr skóla í Hafnarfirði síðan í vor þar sem því var lýst hvernig það sem margir skólar kalla „gult herbergi" var notað á son hennar, sem glímir við taugaþroskaröskun og þarf mikinn stuðning í ýmsum aðstæðum. Nöfnum hefur verið skipt út fyrir bókstafi í þessu textabroti þar sem segir meðal annars:
„… við ákváðum að taka A og fara með hann í rými sem við höfðum undirbúið til að bregðast við svona aðstæðum. Hann var reiður og æstur á leiðinni og mjög orðljótur við B.
Þegar við komum að rýminu settum við A þar inn […] A er mjög reiður og æstur inni í herberginu og við segjum að við komum inn að tala við hann um leið og hann er orðinn rólegur. Þegar við opnum inn þá ræðst hann að okkur og við lokum því aftur. […]
Eftir u.þ.b. 20 mín þá segir A ef þið opnið ekki þá brýt ég rúðuna. Hann taldi upp í 3 og hafði góða pásu á mill, og byrjaði svo að berja í rúðuna …“
Drengurinn var þannig lokaður einn inni í herberginu í að minnsta kosti 20 mínútur.
Hafa gefið skólum leiðbeiningar
Menntamálaráðherra segir að ráðuneytið hafi þegar sent grunnskólum skýr skilaboð um herbergi sem þessi:
„Ráðuneytið hefur fjallað um þessi mál og það hefur verið úrskurðað í einu slíku máli. Og þar höfum við sagt að þetta samræmist ekki lögum um grunnskóla.“
Þannig ráðuneytið hefur beinlínis beint því til grunnskóla að vera ekki með svona herbergi?
„Já, við höfum gert það.“
