Innlent

Skil­orðs­bundið fangelsi fyrir að taka upp kyn­líf í ó­leyfi

Árni Sæberg skrifar
Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms að mestu.
Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms að mestu. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var í dag dæmdur til sextíu daga fangelsisvistar fyrir blygðunarsemisbrot, en fullnustu refsingar var frestað til tveggja ára. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa tekið, án samþykkis, myndir og myndbönd af sér stunda kynlíf með konu.

Í dómi Landsréttar, sem lesa má í heild sinni hér, segir að konan hafi leitað á neyðarmóttöku Landspítalans daginn eftir atvikið vegna kynferðisbrots. Hún hafi sagt lögreglu að hún hafi verið að skemmta sé á ótilgreindum skemmtistað og hitt þar fyrir manninn.

Þau hafi þekkst og ákveðið að fara saman að heimili mannsins þar sem þau hafi stundað kynlíf með samþykki beggja.

Hins vegar hafi hún, á meðan kynlífinu stóð, tekið eftir því að maðurinn væri að taka myndir og myndbönd af henni á farsíma sinn. Hún hafi ekki veitt leyfi fyrir slíkri myndatöku og því hafi hún sagt manninum að hætta og eyða myndefninu.

Hann hafi orðið að ósk hennar en að hún hafi þó óttast að hann ætti afrit af efninu annars staðar í símanum eða í skýinu. Hún hafi þá tjáð honum að hún hyggðist leita til neyðarmóttöku og yfirgefið íbúðina.

Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði maðurinn að hann hefði verið að skipta um tónlist í síma sínum á meðan á kynlífinu stóð. „Eftir stutta stund hefði hann í kæruleysi byrjað að taka myndir og stutt myndskeið,“ er haft eftir honum í dóminum.

Hann segist hafa hætt að taka upp og eytt myndunum og myndböndunum fyrir framan konuna þegar hann varð þess áskynja að henni líkaði ekki athæfi hans.

Fór fram á tvær og hálfa milljón í bætur

Auk skilorðsbundins fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni þrjú hundruð þúsund krónur í miskabætur. Konan hafði farið fram á tvær og hálfa milljón króna í miskabætur úr hendi mannsins.

Þá var manninum gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, um 975 þúsund krónur. Hann hafði áður verið dæmdur til að bera málskostnað í héraði, um 1,850 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×