Haukar unnu þægilegan sigur á Stjörnunni Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 13. nóvember 2021 18:15 Elín Klara Vísir/Hulda Margrét Haukar unnu nokkuð þægilegan sigur á Stjörnunni í 7. umferð Olísdeildar kvenna í dag. Bæði liðin voru með tvo sigra í deildinni fyrir leikinn en það voru gestirnir sem lönduðu sigri, 23-32.
Fyrirfram var búist við spennandi leik en það varð ekki raunin þó svo að fyrri hálfleikurinn hafi verið nokkuð jafn. Haukakonur sigu framúr strax í upphafi og komust í 0-3. Þær héldu svo nokkurn vegin þessari þriggja marka forystu út fyrri hálfleikinn og tókst ekki alveg að hrista af sér baráttuglaðar Stjörnukonur. Það var þó seint í fyrri hálfleiknum sem Haukum tókst að síga enn lengra framúr. Á stuttum kafla breyttu Haukar stöðunni úr 9-11 í 9-15 og þannig stóðu leikar þegar að liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Haukar komust svo fljótt í 12-20 og þar með var nokkuð ljóst hvernig þessi leikur myndi fara. Stjörnunni tókst ekki að brúa bilið og Haukar unnu að lokum nokkuð þægilegan sigur 23-32. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði níu mörk fyrir Hauka og Ragnheiður Ragnarsdóttir skoraði sjö. Anna Petersen varði tólf skot í markinu. Hjá heimakonum var það Eva Björk Davíðsdóttir sem var atkvæðamest með tíu mörk.
Olís-deild kvenna Haukar Stjarnan Mest lesið England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Körfubolti Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Körfubolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Stefán Ingi á leið til Noregs Fótbolti Guðmundur Bragi til Danmerkur Handbolti Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Guðmundur Bragi til Danmerkur Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar HK endurheimtir tvo leikmenn sem urðu Íslandsmeistarar með liðinu Sveinbjörn fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að spila í Ísrael Íslensku strákarnir með bakið upp við vegg Valsmenn fá Króata í heimsókn Haukar mæta Hönunum frá Finnlandi Valskonur fara til Litháen og Haukar til Belgíu Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn Mögnuð endurkoma tryggði íslensku strákunum stig Norðmenn tryggðu Íslandi sæti í 8-liða úrslitum Svíarnir of sterkir fyrir íslensku strákana Össur með tólf mörk í öðrum sigri strákanna í Slóveníu Tuttuguogsjö marka stórsigur í fyrsta leik á EM Hans syrgir pabba sinn en fer 42 ára á ÓL Töpuðu rétt eftir risasigurinn „Fannst ég ekki bæta mig nægilega mikið á þessum tveimur árum“ Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Úlfurinn snýr aftur til Kiel „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Íslendingar mættu stundum hugsa sinn gang Markvörðurinn Ísak til Drammen Hanna Guðrún næsti aðstoðarþjálfari Stjörnunnar „Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“ Elín Klara valin í lið mótsins á HM Stelpurnar tryggðu sér sjöunda sætið Íslensku stelpurnar spila um sjöunda sætið eftir tap í spennuleik Þórsararnir halda áfram að skila sér heim Segir framlög til afreksíþrótta alltof lág: „Þessar 392 milljónir duga engan veginn“ Riðlar Meistaradeildarinnar klárir: Íslendingar áberandi í bestu deild í heimi Sjá meira