Arnaldur hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. nóvember 2021 17:29 Arnaldur Indriðason var kampakátur með verðlaunin. Vísir/Vilhelm Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu. Vera Illugadóttur hlaut sérstaka viðurkenningu íslenskrar tungu.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt þeim þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. „Fáir hafa í seinni tíð breitt út fagnaðarerindi tungumáls okkar líkt og verðlaunhafi ársins, sem með höfundaverki sínu hefur ekki aðeins stuðlað að meira læsi þjóðarinnar með því að færa okkur Íslendingum spennandi bækur, heldur einnig orðið til þess að ryðja fleiri íslenskum höfundum braut með því að vekja athygli heimsins á íslenskum bókmenntum. Bækur Arnaldar hafa nú verið þýddar á rúmlega 40 tungumál og þær þýðingar eru afar mikilvæg brú fyrir okkar tungumál og menningu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra við afhendingu verðlaunanna. Vera hlaut viðurkenningu fyrir Í ljósi sögunnar Að tillögu ráðgjafanefndarinnar var einnig veitt viðurkenning í tilefni dagsins. Lilja veitti því Veru Illugadóttur dagskrárgerðarkonu á RÚV sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu. Var viðurkenningin veitt fyrir þætti Veru, Í ljósi sögunnar, sem njóta mikilla vinsælda. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, veitti Arnaldi verðlaunin í dag.Vísir/Vilhelm. „Með grípandi framsetningu söguefnis hverju sinni nær Vera eyrum hlustenda vítt og breitt um samfélagið. Hún segir sögur sínar á frjóu og fallegu máli og miðlar fróðleik sínum á tilgerðarlausan en áhrifaríkan hátt,“ sagði í greinargerð ráðgjanefndar Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar. Ráðgjafanefnd Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar 2021 skipuðu Ingunn Ásdísardóttir, Haukur Ingvarsson og Katrín Olga Jóhannesdóttir. Þessi hafa hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og grunnskólakennari, 1996 Gísli Jónsson menntaskólakennari, 1997 Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 1998 Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, 1999 Magnús Þór Jónsson, Megas, 2000 Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, 2001 Jón Böðvarsson, 2002 Jón S. Guðmundsson, 2003 Silja Aðalsteinsdóttir, 2004 Guðrún Helgadóttir, 2005 Njörður P. Njarðvík, 2006 Sigurbjörn Einarsson, 2007 Herdís Egilsdóttir, kennari, 2008 Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur og skáld, 2009 Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri, 2010 Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, 2011 Hannes Pétursson rithöfundur, 2012 Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður, 2013 Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur 2014 Guðjón Friðriksson sagnfræðingur 2015 Sigurður Pálsson skáld 2016 Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, 2017 Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, 2018 Jón G. Friðjónsson prófessor, 2019 Gerður Kristný, 2020 Arnaldur Indriðason, 2021 Sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu hafa hlotið: Orðanefnd rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996 Hið íslenska bókmenntafélag, 1997 Blaðamannafélag Íslands, 1998 Félag íslenskra leikskólakennara, 1998 Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, 1999 Mjólkursamsalan, 1999Stóra upplestrarkeppnin, 2000 Dr. Richard N. Ringler, 2000 Félag framhaldsskólanema, 2001 Námsflokkar Reykjavíkur, 2001 Íslensk plöntuheiti, rafræn útgáfa, 2002 Með íslenskuna að vopni, hagyrðingakvöld Vopnfirðinga, 2002 Lesbók Morgunblaðisins, 2003 Spaugstofan, 2003 Kvæðamannafélagið Iðunn, 2004 Strandagaldur, 2004 Lestrarmenning í Reykjanesbæ, 2005 Bókaútgáfan Bjartur, 2005 Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands, 2006 Leikhópurinn Hugleikur, 2006 Samtök kvenna af erlendum uppruna, 2007 Fréttastofa Útvarps, 2007 Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, 2008 Útvarpsleikhúsið, 2008 Þórbergssetur á Hala í Suðursveit, 2009 ( http://www.thorbergur.is/) Baggalútur (www.baggalutur.is), 2009 Möguleikhúsið 2010, (veffang: http://www.moguleikhusid.is/) Hljómsveitin Hjálmar 2010 Hljómsveitin Stuðmenn, 2011 Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði, 2012 Máltæknisetur 2013 ( arnastofnun.is/is/maltaeknisetur ) Ljóðaslamm Borgarbókasafns 2013 (www.borgarbokasafn.is) Vefnámskeiðið Icelandic Online 2014 Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014 Bubbi Morthens tónlistarmaður 2015 Ævar vísindamaður (Ævar Þór Benediktsson) 2016 Gunnar Helgason, rithöfundur, 2017 Verkefnið Skáld í skólum, 2018 Reykjavíkurdætur, 2019 Félag ljóðaunnenda á Austurlandi, 2020 Vera Illugadóttir, 2021.
Íslenska á tækniöld Menning Bókmenntir Mest lesið Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Innlent Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Innlent Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít Innlent Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Innlent Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Innlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent „Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Innlent Munaði engu að ökumaður straujaði niður nítján hjólreiðamenn Innlent Fleiri fréttir Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Íslendingur á sextugsaldri fannst látinn í Taílandi Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar Ákærður fyrir að stinga mann í heimahúsi í Súðavík Veitingamenn berjist í bökkum Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð „Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis „Stanslaus barátta við það að vera ekki með menn í einangrun“ Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski „Covid er alltaf einhvern veginn með okkur“ Þyrlan flutti slasaða göngukonu Slæm hegðun fanga, veiran skæða og sundballett Sex um borð þegar bátur strandaði í Viðey Munaði engu að ökumaður straujaði niður nítján hjólreiðamenn Mál á hendur skipverjum Polar Nanoq fellt niður Eldgos líklegt á allra næstu vikum og jafnvel innan bæjarins „Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting“ Vélarvana bátur strandaði við Viðey Sjá meira
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent