„Ég fékk það verkefni að myndskreyta fyrir þau. Þemað er hvarf jöklanna og verið er að sýna hvernig náttúran er að breytast,“ segir Elín Edda í samtali við Lífið.
„Svo gerði ég handa þeim persónu, sem átti að fanga Íslenska náttúru og töfra hennar. Það er eins og hann sé sprottinn upp úr náttúru, hann tengist engri ákveðinni lífveru og er svolítið abstract. Þetta er mjög forvitin persóna,“ segir Elín Edda um karakterinn.
Teymi frá Nike kom til landsins fyrir myndtatöku á útivistarfatnaðinum. Ljósmyndarinn Jerry Buttles tók myndirnar en íslenski stílistinn Díana Breckmann vann með þeim að verkefninu.
„Þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ segir Elín Edda um myndatökuna. Fyrstu myndirnar byrjaðar að sjást í auglýsingaherferðum fyrirtækisins og á samfélagsmiðlum. Á myndunum má meðal annars sjá Elínu Eddu sjálfa klædda í flíkur með teikningum sínum.

„Þetta er fyrsta sjálfbæra línan, allt endurunnin efni og það er verið að hugsa um fótsporið,“ segir Elín Edda um flíkurnar. Hún er því stolt að fá að taka þátt í verkefninu.
Mikil leynd hvílir þó yfir framhaldinu á þessu Nike verkefni og mátti Elín Edda ekki segja mikið. Hún hefur þó nóg að gera í öðrum verkefnum í augnablikinu.
„Ég er að læra ritlist og er að vinna sem grafískur hönnuður og myndskreytir með fram því. Ég hef verið að gera myndasögur líka, bæði hér heima og erlendis.“

Hægt er að fylgjast með Elínu Eddu á Instagram hér.