Umræður um hvað skuli gera í kjörbréfamálinu svokallaða standa nú yfir á Alþingi en horfa má á beina útsendingu frá þingfundi hér.
Þingfundur hófst á því að Birgir Ármannsson, formaður kjörbréfanefndar, fór yfir nefndarálit meirihluta kjörbréfanefndarinnar um að samþykkja ætti öll kjörbréf. Fór hann yfir rannsókn undirbúningskjörbréfanefndarinnar og rökstuðning meirihlutans fyrir tillögu hans.
Andrés Ingi Jónsson og Björn Leví Gunnarsson, þingmenn Pírata, veittu Birgi andsvar og drógu þeir álit meirihlutans í efa.
Ekkert hafi bent til þess að átt hafi verið við gögnin
Andrés Ingi byrjaði á því að spyrja Birgi hvort hann gæti sagt honum hver niðurstaða kosninganna í Norðvesturkjördæmi hafi verið.
Birgir skaust þá aftur upp í pontu og svaraði því til að að meirihluti nefndarinnar teldi að úrslit kosninganna hefði birst í þeim tölum sem voru birtar eftir seinni endurtalningu í kjördæminu, að frátöldum nokkrum atvæðum sem höfðu verið flokkið vitlaust.

„Að öðru leyti hefur enginn dregið í efa að kjörseðlarnir og kosningagögnin sem við rannsökuðum og geymd eru í fangaklefa lögreglunnar í Borgarnesi séu rétt. Það sem er dregið í efa er það að varsla kjörgagna hafi verið fullnægjandi og nefndarmenn sammála um það að sú varsla var ekki fullnægjandi. En það er ekkert sem bendir til þess að átt hafi verið við gögnin á þessu tímabili og við byggjum okkar niðurstöðu á því,“ sagði Birgir.
Hyldjúpt rugl að mati Andrésar Inga
Andrés Ingi steig þá aftur upp í pontu og sagði mismun atkvæða á milli talninga gefa fullt tilefni til að hægt væri að efast um allt sem væri á borðinu í Norðvesturkjördæmi.
„Það endurspeglar þetta hyldjúpa rugl í þessu máli að við séum með þrjár tölur. Háttvirtur þingmaður sagði að það væri seinni talningin sem að væri miðað við,“ sagði Andrés Ingi.´

Fór hann þá yfir atkvæðatölur Viðreisnar sem fékk 1072 atkvæði eftir fyrstu talningu en missti níu atkvæði eftir seinni talningu auk þess sem að Andrés benti á að tvö atkvæði Viðreisnar hafi fundist við afstemmningu undirbúningskjörbréfanefndar.
„Miðflokkurinn fór yfir úr 1283 yfir í 1278 og svo er líka hægt að segja að þeir hafi fengið 1279 atkvæði,“ sagði Andrés sem sagði fullt tilefni til að efast um talningarnar í Norðvesturkjördæmi.
„Þó að þessar tölur einar og sér þegar þær eru settar í reiknilíkan Landskjörstjórnar breyti ekki heildarúthlutun á landsvísu þá gefa þær fullt tilefni til þess að við efumst allt sem er á borðinu í Norðvesturkjördæmi. Í fullkomnum heimi myndum við endurtelja þetta frá botni en við getum það ekki því það er búið að menga kjörgögnin. Hvernig í ósköpunum fær meirihlutinn út að það sé hægt að láta þessar tölur standa en ekki mæla með uppkosningu.“