Þetta segir í frétt Fréttablaðsins þar sem haft er eftir Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR, að Vínbúðin hafi farið yfir innsend tilboð og hafi niðurstaða verið sú eftir ítarlega skoðun að Fiskislóð 10 væri eina staðsetningin sem uppfyllti skilyrði auglýsingarinnar.
Íslandsbanki var eitt sinn staðsettur í húsnæðinu, sem er við hlið verslunar Bónus og til móts við Krónuna og Nettó á Granda. Hitt húsnæðið sem kom til greina hjá ÁTVR var við Hringbraut 119 til 121, við Hallveigarstíg 1 og á Hallgerðargötu 19 til 23.
Tilkynningin hefur þegar vakið hörð viðbrögð netverja sem eru síður en svo sáttir við að Vínbúðin fari svo langt frá hjarta miðborgarinnar. Næstu skref, að sögn Sigrúnar, verða þó að ræða við eigendur húsnæðisins á Fiskislóð og sjá hvort samningar náist.
„Nú verður engin Vínbúð í göngufæri fyrir um 40 þúsund Reykvíkinga. Kaldhæðnislega sömu 40 þúsund Reykvíkinga sem labba og hjóla mest samkvæmt ferðavenjukönnunum,“ skrifar Björn Teitsson á Twitter.
Nú verður engin Vínbúð í göngufæri fyrir um 40 þúsund Reykvíkinga. Kaldhæðnislega sömu 40 þúsund Reykvíkinga sem labba og hjóla mest samkvæmt ferðavenjukönnunum. Endilega, fjölgum bílferðum og blöndum líka saman akstri og áfengi. Það gefst alltaf vel. 👏
— Björn Teitsson (@bjornteits) November 26, 2021
„Jæja, þá er ég (bíllaus maður sem býr í miðbænum og vinnur í Borgartúni) bara hættur að drekka,“ skrifar Pétur Urbancic.
Jæja, þá er ég (bíllaus maður sem býr í miðbænum og vinnur í Borgartúni) bara hættur að drekka. Lýðheilsuhlutverkið greinilega tekið alvarlega hjá ÁTVR!https://t.co/V8L6vthrPC
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) November 26, 2021
ÁTVR, eruði að grínast?
— bebbi (@Bergrun) November 26, 2021
„Ætlar Vínbúðin svona í alvöru ekki að hafa verslun í miðbæ Reykjavíkur? Það er alveg galið. Rakleiðis með þetta í búðir segi ég,“ skrifar Freyja Steingrímsdóttir.
Fiskislóð er ekki miðbærinn.
— Freyja Steingrímsdóttir (@freyjast) November 26, 2021
Sigurður O. tekur undir þetta og segir þessa tilfærslu sturlun.
Þetta er svo mikil sturlun. Er engin umhverfisstefna í gangi hjá fyrirtækinu.
— Sigurður O. (@SiggiOrr) November 26, 2021
Flott ferðamannaborg líka. Þarft að fara í eitthvað stripmall til þess að sækja sér bjór.
Halldór Auðar Svansson segir Vínbúðina ekki eina meðal ríkisstofnana um að velja sér óaðgengilegar staðsetningar.
Vínbúðin er ekkert eitthvað sér á parti þegar kemur að ríkisstofnunum sem velja sér óaðgengilegar staðsetningar. Þetta hefur verið almenn þróun undanfarin ár. Mögulega t.d. af því að stofnanir fá ekki nægilegt fjármagn til að geta verið annars staðar en á einhverjum jaðri.
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) November 26, 2021
Reyn Alpha skrifar á Twitter að þessi staðsetning sé á pari við að Vínbúðin fyrir Hveragerði væri staðsett á Selfossi, svo langt sé Grandinn frá Miðbænum.
þessi fyrirsögn er álíka rétt og „Vínbúðin búin að ákveða staðsetningu á Selfossi“ um búð í Hveragerðihttps://t.co/VXlQC5BU54
— Reyn Alpha (@haframjolk) November 26, 2021
Fréttin hefur verið leiðrétt. Áður sagði að Vínbúðin á Austurstræti verði flutt á Fiskislóð 10 en það er háð því hvort samningar náist við eigendur húsnæðisins.