Mæðgurnar Ruby Freeman og Wandrea Moss, segja meðal annars að ósannindi Gateway Pundit hafi grafið undan orðspori þeirra, leit til hótanna, neytt þær til að skipta um símanúmer og hafi valdið því að þær óttist um öryggi sitt.
Þær segja ókunnuga menn hafa reynt að „handtaka“ þær.
Þær hafa Gateway Pundit, Jim Hoft eiganda miðilsins, og Joe Hoft, bróðir eigandans sem skrifar reglulega á vefinn, samkvæmt AP fréttaveitunni. Þeir svöruðu ekki fyrirspurnum fréttaveitunnar.
Trump reiður yfir tapi
Trump tapaði naumlega gegn Joe Biden í kosningunum í Georgíu og reiddist hann yfir því. Hann hélt því ítrekað fram að svindl hefði kostað hann sigur þar, eins og hann hefur sagt um kosningarnar í heild, án þess þó að hafa rétt fyrir sér.
Tæplega tólf þúsund atkvæði skildu þá Trump og Biden af. Forsetinn þrýsti á embættismenn í Georgíu og bað þá um að „finna“ nógu mörg atkvæði til að tryggja sér sigurinn.
Jacki Pick, sem var í lögfræðingateymi forsetans þáverandi birti þann 3. desember myndband sem hún sagði að sýndi kosningastarfsmenn í Atlanta vísa eftirlitsaðilum Repúblikanaflokksins á brott og í kjölfarið draga fram falsaða kjörseðla til að telja.
Pick hafði ekki rétt fyrir sér og sérfræðingar hafa ítrekað skotið myndbandið á kaf en Trump-liðar nota þó enn til að halda því fram að Demókratar hafi svindlað í kosningunum.
Lögmaður Trumps nefndi Ruby
Þegar Pick sýndi myndbandið á nefndarfundi ríkisþings Georgíu tók hún fram að ein konan á myndbandinu væri með nafnið Ruby skrifað á bol sinn. Seinna þann dag birti Gateway Pundit nafn hennar og í kjölfarið nafn dóttur hennar.
Miðillinn hélt áfram að birta fréttir um þær mæðgur þó búið væri að sýna fram á að þær hefðu ekkert gert af sér og endurtalningar staðfestu niðurstöðu kosninganna.
Samkvæmt Reuters bar ein frétt Gateway Pundit fyrirsögnina: „Hvað er að frétta Ruby? KENNSL BORIN Á á spilltan útsendara sem var myndaður við að taka upp ferðatösku af kjörseðlum í Georgíu,“ lauslega þýtt.
Á þessum tíma rigndi hótunum frá stuðningsmönnum Trumps yfir kosningastarfsmenn í Georgíu.
Þurftu að fara í felur
Í kjölfar fréttaflutnings Gateway Pundit fékk Freeman fjölmargar hótanir í formi tölvupósta, skilaboða og símtala. Ókunnugt fólk fór jafnvel að birtast heima hjá þeim og starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna tóku þá ákvörðun að flytja hana um set þann 6. janúar vegna þess að hún væri ekki örugg heima hjá sér.
Hótunum og rasískum skilaboðum rigndi einnig yfir son hennar sem er á táningsaldri.
Þann dag brutu stuðningsmenn Trumps sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna með því markmiði að stöðva formlega staðfestingu úrslita kosninganna.
Freeman hafði áður búið hjá ömmu sinni og þangað mættu ókunnugir menn minnst tvisvar sinnum til að framkvæma það sem þeir kölluðu borgaralega handtöku, samkvæmt kæru þeirra Freeman og Moss.