Maðurinn sem slasaðist í árásinni í gærkvöldi er í lífshættu en hann var skotinn í höfuðið á vatnspípureykstofu á mörkum borgarhlutanna Norðurbrú og Friðriksberg. Lögreglan fékk tilkynningu rúmlega hálftíu í gærkvöldi um að skoti hefði verið hleypt af en fámennt var á reykstofunni þegar árásin var gerð.
Kaupmannahafnarlögreglan auglýsir eftir ungum manni sem grunaður er um skotárásina. Hann náðist á mynd öryggismyndavélar við matvöruverslun á leið sinni í átt að miðborginni.
Árásin í gærkvöldi var sú þriðja á þremur dögum í dönsku höfuðborginni. Síðdegis á fimmtudag var 27 ára gamall maður myrtur á Norðurbrú og eru tveir aðilar í haldi grunaðir um morðið. Um kvöldmatarleytið á föstudags lést 17 ára piltur eftir að hafa verið skotinn á hárgreiðslustofu í Islev en 15 ára piltur og 28 ára gamall maður slösuðust einnig í þeirri árás.
Lögreglan hefur verið fámál um ástæður árásanna en talsmaður hennar segir að eftir árásina á laugardag hafi grunur þeirra styrkst um að þær tengist átökum innan glæpagengja borgarinnar.
Í kjölfar árásanna hefur lögreglan fengið auknar heimildir til að framkvæma leit á fólki í ákveðnum hverfum án staðfests gruns um að aðild að málinu.