Erlent

Japanskur auðjöfur í skemmtiferð til geimstöðvarinnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Soyuz-eldflaugin reist í Baikonur.
Soyuz-eldflaugin reist í Baikonur. AP/Pavel Kassin

Japanski auðjöfurinn Yusaku Meazawa leggur af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í vikunni. Honum verður skotið út í geim á Soyuz-eldflaug frá Baikonur í Kasakstan og verður hann um borð í geimstöðinni í tólf daga.

Með Meazawa verður Yozo Hirano, kvikmyndagerðarmaður sem á að festa geimferð auðjöfursins sem er talinn þrítugasti ríkasti maður Japans á filmu. Geimfarinn Alexander Misurkin fer sömuleiðis með þeim en hann er yfirmaður ferðarinnar.

Til stendur að skjóta þremenningunum á loft á miðvikudaginn.

Meazawa bókaði ferðina hjá bandaríska fyrirtækinu Space Adventures en það hefur sent sjö ferðamenn til ISS. Síðast fór Guy Laliberté þangað árið 2009, samkvæmt frétt Space.com.

Ekki hefur verið gefinn upp hvað geimferð mannanna tveggja kostar en samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar hafa sambærilegar ferðir kostað milljónir Bandaríkjadala. Space.com segir aðra viðskiptavini Space Adventures hafa greitt frá tuttugu til fjörutíu milljónir dala.

Mawzawa er metinn á um 1,9 milljarð dala, sem samsvarar tæpum 250 milljörðum króna.

Meazawa ætlar þó ekki eingöngu til ISS en hann hefur einnig bókað geimferð í kringum tunglið hjá SpaceX. Sú ferð verður í fyrsta lagi farin árið 2023.

Í þá ferð ætlaði hann upprunalega að taka með sér listamenn og nýja kærustu og hóf hinn 46 ára gamli auðjöfur nokkurs konar kærustukeppni á netinu.

Hann hætti þó við og bað fólk um að senda umsóknir. Hann segist hafa fengið milljón umsóknir um átta sæti í geimfarinu.

Síðustu almennu borgarar sem fóru til geimstöðvarinnar voru Klim Shipenko, leikstjóri, og Júlía Peresild, leikkona, en þangað fóru þau til að taka upp atriði fyrir kvikmynd. Þeim var einnig skotið út í geim með Souyz-eldflaug og voru einnig í tólf daga um borð í geimstöðinni.


Tengdar fréttir

Sex hundraðasti geim­farinn á leið til geim­stöðvarinnar

Fjórir geimfarar eru á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir vel heppnað geimskot frá Flórída í nótt. Áætlað er að þau komi til geimstöðvarinnar seinna í dag en um borð í Crew Dragon geimfarinu er sex hundraðasti geimfari jarðarinnar.

Luku 198 daga geimferð í nótt

Fjórir geimfarar féllu til jarðar í geimfari SpaceX í nótt og lentu undan ströndum Flórída. Þar með lauk 198 daga geimferð um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta var þriðja mannaða geimferð SpaceX en sú fjórða hefst væntanlega á morgun.

Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar

Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað.

Fyrstu kvik­mynda­tökunni úti í geim lokið

Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur.

William Shatner er elsti geimfari jarðarinnar

Geimskot Blue Origin þar sem níræði leikarinn William Shatner varð elsti maður jarðarinnar til að fara út í geim, heppnaðist vel. Eftir að vera skotið á loft frá Texas lentu geimfararnir nýju heilu og höldnu annarsstaðar í ríkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×