Mánuður er liðinn frá því fyrsta skipið hélt til loðnuleitar en það var skip Síldarvinnslunnar, Bjarni Ólafsson AK. Það var svo loks um hádegisbil í gær sem Bjarni kom með fyrsta farminn til löndunar á Norðfirði, 1.600 tonn, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Skip Brims, Víkingur AK, varð þó á undan, en Víkingur kom með 2.100 tonn til Vopnafjarðar í gærmorgun. Þá er annað skip Brims, Venus, núna að landa 2.600 tonnum á Vopnafirði og búist við þriðja skipinu, Svani, þangað á morgun, að sögn Garðars Svavarssonar, forstöðumanns uppsjávarsviðs Brims.
Snemma í morgun kom svo Aðalsteinn Jónsson SU með 1.700 tonna loðnufarm inn til Eskifjarðar, að sögn Þorsteins Kristjánssonar, forstjóra Eskju.
Þá er von á fyrsta loðnufarminum inn til Þórshafnar í nótt eða á morgun, að sögn Siggeirs Stefánssonar, framleiðslustjóra Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn. Býst hann við að Heimaey VE verði fyrst, en tvö önnur skip félagsins, Sigurður VE og Álsey VE, eru einnig á loðnumiðunum úti fyrir Norðurlandi, djúpt norður af Melrakkasléttu og Langanesi.
Hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum býst Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdstjóri vart við fyrsta loðnufarminum fyrr en eftir þrjá daga. Tvö skipa fyrirtækisins eru sem stendur frá veiðum eftir vélarbilun hjá Kap VE í gær og fór Ísleifur VE í það að draga Kap inn til Akureyrar. Bæði skipin voru komin með um það bil hálfan farm, að sögn Binna, Kap með um 800 tonn og Ísleifur með um 1.000. Þriðja skipið, Huginn, er hins vegar á miðunum og komið með tæplega 1.000 tonn.
Þótt loðnuvertíðin sé þannig komin á fulla ferð skyggir tilkynning Landsvirkjunar í gær á gleðina. Orkufyrirtækið ákvað nefnilega að skerðing á afhendingu raforku til fiskimjölsverksmiðja tæki strax gildi, en ekki í janúar eins og ætlað hafði verið. Sama gildi um aðra stórnotendur raforku með skerðanlega skammtímasamninga, eins og gagnaver og álver.
Í fréttatilkynningu ber Landsvirkjun meðal annars fyrir sig raforkuskort og að flutningskerfið ráði ekki við að flytja nægilega raforku milli landshluta.
„Þetta var mikið áfall að fá þessa tilkynningu Landsvirkjunar í gær. Þetta kom mjög brátt upp á. Við erum að setjast niður og átta okkur á því hvað þetta þýðir,“ segir Garðar Svavarsson hjá Brimi, sem jafnframt er formaður Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda.
„Þetta þýðir óhemju notkun á olíu. Við eigum líka eftir að ræsa búnaðinn og sjá hvort hann virkar. Hann hefur ekkert verið í notkun í lengri tíma,“ segir Garðar.
Þorsteinn Kristjánsson hjá Eskju tekur í sama streng. Þorsteinn segir það í raun alveg hræðilegt að þurfa að fara að nota olíu. Þannig áætlar að hann að bara bræðslan á Eskifirði muni þurfa 35 til 40 tonn af olíu á sólarhring. Það sé mjög slæmt.