Innlent

Frumvörp um velferð dýra og stjórn fiskveiða afgreidd til nefndar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Heilbrigðisráðherra flytur í dag munnlega skýrslu um sóttvarnaraðgerðir og horfurnar fram undan. 
Heilbrigðisráðherra flytur í dag munnlega skýrslu um sóttvarnaraðgerðir og horfurnar fram undan.  vísir/vilhelm

Fyrstu umræðu lauk á þingi í gær í tveimur frumvörpum frá stjórnarandstöðunni.

Annarsvegar var um að ræða frumvarp um stjórn fiskveiða sem Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar var fyrsti flutningsmaður að, og hinsvegar frumvarp um velferð dýra sem miðar að því að banna blóðmerahald hér á landi. Inga Sæland formaður Flokks fólksins er fyrsti flutningsmaður þess frumvarps.

Frumvörpin fara nú bæði til umræðu í atvinnuveganefnd.

Þingfundur hefst í dag klukkan eitt með óundirbúnum fyrirspurnatíma. Að honum loknum mun heilbrigðisráðherra flytja munnlega skýrslu um sóttvarnaraðgerðir og horfurnar fram undan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×