Innlent

Gray line léttir undir með slökkviliðinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Gray line mun til að byrja með skaffa þrjá bíla til verksins.
Gray line mun til að byrja með skaffa þrjá bíla til verksins. Vísir/Vilhelm

Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við rútufyrirtækið Gray Line um að annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi í sjúkrabíl að halda.

Markmiðið með þessum samningi er að létta álaginu af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem annast sjúkraflutninga.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að fyrirséð að þörf fyrir slíka flutninga muni aukast á næstunni vegna aukningu á fjölda þeirra sem greinast smitaðir af Covid-19.

Reiknað er með að flutningar samkvæmt samningnum hefjist sem fyrst, en eigi síðar en 1. janúar næstkomandi.

Samningurinn tekur til flutnings einstaklinga sem eru smitaðir eða ef grunur leikur á smiti, að því tilskyldu að viðkomandi séu færir um að sitja uppréttir í bíl og þurfi ekki á aðstoð heilbrigðisstarfsmanns að halda meðan á flutningnum stendur.

Gray Line þarf að veita þjónustuna að lágmarki þann tíma sem Covid-göngudeildin er opin, það er frá átta til 23 á hverjum sólarhring.

Einnig skal fyrirtækið tryggja akstur farþega frá göngudeildinni eftir lokun ef þess gerist þörf. Þá er einnig miðað við að hægt sé að óska eftir þjónustu fyrirtækisins vegna flutninga einstaklinga sem eru utan höfuðborgarsvæðisins, til dæmis í sumarhúsabyggðum í grennd við borgina.

Til að byrja með mun Gray Line verða með þrjá bíla til að sinna þessu verkefni en mun fjölga bílum ef þess gerist þörf.

Fyrirtækið skal tryggja að bílar sem notaðir eru til flutninganna uppfylli allar öryggiskröfur sem gerðar eru í fólksflutningum og jafnframt að bílarnir og annar búnaður henti til flutninga á smituðu fólki þannig að viðeigandi smitvarnir séu tryggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×