Innlent

Bein út­sending: Svara spurningum um bólu­setningar barna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Stefnt er að því að hefja bólusetningar barna á aldrinum fimm til ellefu ára á næstunni.
Stefnt er að því að hefja bólusetningar barna á aldrinum fimm til ellefu ára á næstunni. Vísir/Vilhelm

Velferðarnefnd Alþingis heldur opinn fjarfund klukkan tíu þar sem fjallað verður um bólusetningu fimm til ellefu ára barna gegn Covid-19.

Fundurinn hefst klukkan 10 og horfa má á beina útsendingu frá fundinum hér að neðan.

Gestir fundarins verða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Kamilla Sigríður Jósefsdóttir frá embætti landlæknis, Sigríður Dóra Magnúsdóttir og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Þá mæta Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Sigurður Kári Árnason, Ásthildur Knútsdóttir og Milla Ósk Magnúsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu.

Sóttvarnalæknir gaf grænt ljós á bólusetningar barna á aldrinum fimm til ellefu ára fyrr í mánuðinum og stendur til að hópurinn verði bólusettur eftir áramót. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×