Erlent

Segj­ast hafa um­tals­verð sönn­un­ar­gögn um lög­brot

Samúel Karl Ólason skrifar
Hér má sjá Donald Trump og þrjú elstu börn hans. Frá vinstri; Donald Trump yngri, Ivanka Trump og Eric Trump. Ríkissaksóknari New York vill ræða við þau öll nema Eric, sem búið er að ræða við.
Hér má sjá Donald Trump og þrjú elstu börn hans. Frá vinstri; Donald Trump yngri, Ivanka Trump og Eric Trump. Ríkissaksóknari New York vill ræða við þau öll nema Eric, sem búið er að ræða við. EPA/SHAWN THEW

Starfsmenn ríkissaksóknara New York sögðust í gær hafa fundið umtalsverð sönnunargögn um að forsvarsmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hefðu beitt sviksömum og villandi leiðum til að fá lán og greiða lægri skatta.

Þetta kom fram í dómsskjölum sem opinberuð voru í gærkvöldi og sagt er frá í frétt AP fréttaveitunnar en einnig kemur fram að ekki hafi verið ákveðið hvort höfða eigi mál gegn Trump.

Fyrst vilja rannsakendur ræða við Trump sjálfan, Donald Trump yngri og Ivönku Trump, börn hans, vegna rannsóknarinnar.

Þeim var öllum stefnt fyrr í mánuðinum með því markmiði að fá þau til að ræða við rannsakendur. Verjendur forsetans fyrrverandi segja málið gegn honum eiga rætur í pólitík og hafa varist öllum tilraunum til að fá þau til að bera vitni.

Rannsókn Letitia James, ríkissaksóknara, er ekki glæparannsókn og finni hún vísbendingar um að brot hafi verið framin getur hún höfðað mál. Umdæmasaksóknari Manhattan er þó einnig með fyrirtæki Trumps til rannsóknar en sú rannsókn er glæparannsókn og kemur Letitia James einnig að henni.

Sjá einnig: Trump og tveimur börnum hans stefnt

Báðar rannsóknirnar á Trump og fyrirtæki hans beinast að því hvernig Trump hafi verðmetið eignir sínar í gegnum árin. Þær snúa að því hvort Trump hafi blekkt banka og skattyfirvöld um raunveruleg verðmæti eigna fyrirtækisins. Hann hafi ýmist ýkt virði þeirra til að fá hagstæðari lán eða gert lítið úr þeim til að komast hjá skattgreiðslum.

Letita James, ríkissaksóknari, sagði á Twitter í nótt að umtalsverð sönnunargögn hefðu fundist um að áðurnefndir þremenningar hefðu komið að málunum sem um ræðir og því væri nauðsynlegt að ræða við þau.

Í áðurnefndum dómsskjölum kemur meðal annars fram að fyrirtæki Trumpms hafi verðmetið fjölmargar eignir með skringilegum forsendum. Má þar nefna að fyrirtækið hafi bætt fimmtán til þrjátíu prósent við eignir sem báru nafn Trumps, þó komið hafi fram í skjölum fyrirtækisins að það hafi ekki átt við.

Í einu tilfelli var eign fyrirtækisins í skrifstofubyggingu í New York metin af fyrirtækinu sjálfu á 525 til 602 milljónir dala. Það var tvisvar til þrisvar sinnum hærra en mat sérfræðinga Capital One.

Þá var íbúð sem Ívanka Trump leigði af fyritækinu metin á 25 milljónir dala en á sama tíma var henni boðið að kaupa íbúðina á 8,5 milljónir.


Tengdar fréttir

Hættir á þingi til að stýra fyrirtæki Trumps

Devin Nunes, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Kaliforníu, ætlar að hætta á þingi í lok mánaðarins til að taka að sér stjórn nýs fjölmiðlafyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Fyrirtækið heitir Trump Media & Technology Group og mun Nunes taka við stjórn þess í byrjun næsta árs.

Skattinum gert að af­henda skýrslur Trumps

Dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum hefur skipað skattayfirvöldum að afhenda þingnefnd skattskýrslur Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa reynt að fá gögnin afhent um árabil í gegn um dómskerfið án árangurs.

Fjármálastjóri Trumps lýsti yfir sakleysi sínu

Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í New York í dag. Það gerði hann í kjölfar þess að hann var ákærður fyrir skattsvik vegna tveggja ára langrar rannsóknar saksóknara á fyrirtæki forsetans fyrrverandi.

Saksóknarar í New York taka höndum saman gegn fyrirtæki Trumps

Rannsókn saksóknara í New York á fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, er nú orðin glæparannsókn. Þeir vinna nú með ríkissaksóknunum í Manhattan en í meira en ár hafa bæði embætti unnið að mismunandi rannsóknum á viðskiptum forsetans fyrrverandi og hafa þær nú verið sameinaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×