Neytendur

Innkalla bjórdósir sem geta sprungið

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Umræddur bjór.
Umræddur bjór.

ÁTVR hefur innkallað vöruna Svartálfur Potato Porter, sem er bjór í 330 ml áldós, þar sem umbúðir vörunnar geta bólgnað út og sprungið með tilheyrandi slysahættu.

Innköllunin miðast eingöngu við birgðir vörunnar merktar með best fyrir dagsetningunni 19/05/2022,að því er fram kemur í tilkynningu frá ÁTVR.

Varan hefur nú þegar verið fjarlægð úr hillum Vínbúðanna. Allir sem eiga þessa vöru, með fyrrnefndri best fyrir dagsetningu, eru beðnir um að farga henni eða skila henni í næstu vínbúð og fá hana þar bætta.

Ef umbúðir vörunnar eru bólgnar er rétt að leiðbeina um að opna umbúðirnar að viðhafðri fyllstu varúð.

Framleiðandi vörunnar og ábyrgðaraðili er: Álfur Brugghús ehf., Sandakur 12, 210 Garðabær.

Strikamerki:

Á áldós: 5694230411207. 

Á kassa sem geymir 24 áldósir: 15694230411204.

Varan hefur verið boðin til sölu í 12 verslunum ÁTVR: Kringlunni, Skeifunni, Heiðrúnu, Dalvegi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Skútuvogi, Stekkjarbakka, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Selfossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×