Í lok árs 2020 keypti Baader meirihluta í Skaganum 3X eftir að þáverandi eigendur leituðu eftir fjárfestum til að styðja við félagið og rekstrarfélög þess. Baader hefur nú keypt eftirstandandi 40 prósent hlut af IÁ-hönnun. Að því er segir í tilkynningu frá Skaganum 3X.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess og fyrirtækið verður nú betur í stakk búið að takast á við skuldbindingar sínar og þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins,“ segir Jeff Davis, stjórnarformaður Skaginn 3X.
Skaginn 3X verður hluti Baader samsteypunnar sem sérhæfir sig í hátæknilausnum í matvælaframleiðslu. Samþætting starfsemi félaganna er þegar hafin og reiknað er með að henni ljúki á næstu mánuðum.
Jeff Davis, sem gengt hefur starfi stjórnarformanns, verður áfram í því hlutverki og Guðjón Ólafsson mun áfram gegna starfi sem tímabundinn forstjóri.