Innlent

Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðursins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Víða er rafmagnslaust vegna óveðursins. 
Víða er rafmagnslaust vegna óveðursins.  Vísir/Egill

Töluvert er um að skemmdir hafi orðið á rafdreifikerfi Veitna vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið. Rafmagnsstaurar hafa víða brotnað, línur slitnað auk þess sem ísing hefur safnast upp á þeim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

Þar segir að nokkuð víðtækt rafmagnsleysi hafi fylgt en veður hamli viðgerðum. Vinnuflokkar kanni nú stöðuna og hefji viðgerðir þar sem slíkt er hægt. Aðstæður séu erfiðar og ekki vitað hversu langan tíma tekur að koma rafmagni aftur á. Ekki sé hægt að flytja varaafl milli staða fyrr en veðrinu slotnar.

Frá því síðdegis í gær hefur verið rafmagnslaust á svæðinu frá Hólmsheiði að Hafravatni. Vinnuflokkar eru komnir á svæðið en ekki er ljóst hvenær viðgerðum lýkur og rafmagn kemst aftur á. Í gærkvöldi fór rafmgan af svæðinu frá Mosfelli að Skálafelli og á Bláfjallasvæðinu. Lögbergslína fór út á níunda tímanum í gærkvöldi og orsakaði rafmagnsleysi frá Geithálsi að Hellisheiðarvirkjun.

Þá er einnig rafmagnslaust í Þorlákshöfn vegna bilunar hjá Rarik sem hefur áhrif á dælu hitaveitu svo þar er einnig heitavatnslaust. Unnið er að endurræsingu kerfisins.

Þá bilaði dælubúnaður hitaveitunnar í Lækjargötu í Hafnarfirði í morgun svo þrýstingur á kerfinu lækkaði í nokkrum hverfum. Búið er að koma dælunni aftur í gang svo allir íbúar ættu að vera komnir með eðlilegan þrýsting á heita vatninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×