Körfubolti

Síðastur til að ná þessu í Bulls-búningi var Jordan fyrir þremur áratugum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DeMar DeRozan hefur verið magnaður með Chicago Bulls liðinu á þessu tímabili.
DeMar DeRozan hefur verið magnaður með Chicago Bulls liðinu á þessu tímabili. AP/Charles Rex Arbogast

Phoenix Suns og Chicago Bulls héldu áfram sigurgöngu sinni þegar NBA-deildin í körfubolta fór aftur af stað eftir hlé vegna Stjörnuleiksins. Phoenix hefur nú unnið nítján sigra í síðustu tuttugu leikjum.

Það er ný súperstjarna í Chicago og hann er farinn að gera hluti sem hafa ekki sést hjá félaginu síðan að besti leikmaður allra tíma var í Bulls-búningnum.

DeMar DeRozan hélt áfram að bæta metið sitt í leikjum í röð með 35 stig og fimmtíu prósent skotnýtingu. DeRozan var með 37 stig og hitti úr 15 af 21 skoti sínu þegar Chicago Bulls vann 112-108 sigur á Atlanta Hawks.

Þetta var áttundi leikur DeRozan með slíkar tölur og Bulls-liðið var þarna að vinna sinn sjötta leik í röð. Þetta er níundu þrjátíu stiga leikur DeRozan í röð sem er það lengsta hjá leikmanni félagsins síðan Jordan náði því í tíu leikjum í röð frá 25. desember 1990 til 14. janúar 1991.

Devin Booker tók upp hanskann fyrir Chris Paul þegar Phoenix Suns hélt áfram sigurgöngu sinni án leiðtoga síns og aðalleikstjórnanda. Booker var með 25 stig, 12 stoðsendingar og 6 stolna bolta þegar Phoenix Suns vann 124-104 útisigur á Oklahoma City Thunder.

Chris Paul er þumalputtabrotinn og verður frá keppni næstu vikurnar. Suns vann þarna áttunda sigur sinn í röð og er með langbesta árangurinn í deildinni. Cameron Johnson og Mikal Bridges skoruðu báðir 21 stig í þessum nítjánda sigri Suns liðsins í síðustu tuttugu leikjum.

Shai Gilgeous-Alexander var með 32 stig fyrir Thunder í sínum fyrsta leik eftir tíu leikja fjarveru vegna ökklameiðsla. Josh Giddey var með 15 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar.

Jayson Tatum skoraði 30 stig þegar Boston Celtics vann 129-106 sigur á Brooklyn á útivelli. Boston vann níu af síðustu tíu leikjum sínum fyrir Stjörnuleikinn og tók upp þráðinn á ný. Jaylen Brown var með 18 stig og Marcus Smart skoraði 15 stig.

Kevin Durant, Ben Simmons and Goran Dragic hjá Nets horfðu allir á leikinn og Kyrie Irving mátti ekki vera með af því að þetta var heimaleikur. Seth Curry var stigahæstur með 22 stig en þetta bar þrettánda tap Nets-liðsins í síðustu fimmtán leikjum.

Steph Curry var með 18 stig og 14 stoðsendingar á 27 mínútum þegar Golden State Warriors vann 132-95 útisigur á Portland Trail Blazers. Golden State tapaði fjórum af síðustu fimm leikjum fyrir Stjörnuleikshelgina en vann sannfærandi sigur í nótt.

Klay Thompson var með 18 stig og hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum. Sjö leikmenn liðsins skoruðu tíu stig eða meira en Jonathan Kuminga kom með xx stig inn af bekknum.

  • Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
  • Portland Trail Blazers - Golden State Warriors 95-132
  • Oklahoma City Thunder - Phoenix Suns 104-124
  • Minnesota Timberwolves - Memphis Grizzlies 119-114
  • Chicago Bulls - Atlanta Hawks 112-108
  • Brooklyn Nets - Boston Celtics 106-129
  • Detroit Pistons - Cleveland Cavaliers 106-103
  • Sacramento Kings - Denver Nuggets 110-128
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×