Fótbolti

Guðný kom af bekknum í jafntefli

Atli Arason skrifar
Guðný Árnadóttir, leikmaður AC Milan
Guðný Árnadóttir, leikmaður AC Milan Getty

Guðný Árnadóttir kom inn af varamannabekknum á 84. mínútu í markalausu jafntefli Sassuolo og AC Milan í ítölsku Serie A deildinni í knattspyrnu.

Benedetta Orsi í liði Sassuolo fékk rauða spjaldið á 14. mínútu leiksins og gestirnir frá Milan því klaufar að ná ekki í stigin þrjú þar sem þær spiluðu leikmanni fleiri nánast allan leikinn. 

Sassuolo er áfram í öðru sæti deildarinnar eftir jafnteflið, 6 stigum á eftir toppliði Juventus. AC Milan er í fjórða sæti með 31 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×