Tónlist

Sautján ára Íslendingur sem hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Kanye West

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Konráð Darri Birgisson eða k1d krono á hlut í laginu Louie Bags með Kanye West
Konráð Darri Birgisson eða k1d krono á hlut í laginu Louie Bags með Kanye West Aðsend/k1dkrono

Konráð Darri Birgisson er sautján ára gamall tónlistarmaður, búsettur í Bandaríkjunum og gengur undir listamannsnafninu K1d Krono. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð gífurlegum árangri í tónlistarheiminum við að semja melódíur en hann á meðal annars hlut í laginu Louie Bags af plötunni Donda 2, sem hinn heimsfrægi rappari Kanye West gaf út á dögunum.

Blaðamaður hafði samband við Konráð eða K1d Krono og fékk að heyra hvernig tónlistarferillinn hófst og hvernig hann endaði á að vinna með Kanye West.

Byrjaði sjö ára í tónlistinni

„Pabbi minn, sem er tónlistar pródúser, kom mér upprunalega inn í tónlistina. Ég byrjaði fyrst að prófa mig áfram í að gera tónlist þegar ég var sjö ára gamall í forritinu Garageband. Á þeim tíma var ég auðvitað ekki að taka hlutunum alvarlega en pabbi minn hjálpaði mér að uploada lögunum inn á Youtube,“ segir K1d Krono um upphaf tónlistar ferilsins. 

Það var svo í júlí mánuði ársins 2020 sem hann fór að taka tónlistinni alvarlega. „Ég byrjaði með Instagram síðu og fór að hlaða inn beat-um tvisvar í viku.“

Kom melódíunum á framfæri

Rúmu ári síðar, í ágúst 2021, byrjaði Krono að selja beat-in sín og þaðan fór boltinn að rúlla.

„Ég kalla sjálfan mig loop maker, sem er einhver sem semur melódíur í lagi.“

Krono segist hafa sett upp lista af emailum hjá öflugum pródúserum og sendir melódíurnar sínar reglulega til þeirra. Hann er duglegur að uppfæra listann stöðugt og bæta við nöfnum. „Á endanum fór ég að fá öflug sambönd út frá þessu.“ 

Þrátt fyrir mikla velgengni undanfarið hefur K1d Krono ekki ákveðið nákvæmlega hvað hann ætlar að verða í framtíðinni. „Ég hef ekki alveg hugsað í þaular um að vinna sem tónlistar pródúser í framtíðinni ef ég á að vera hreinskilinn. 

Allt hefur gerst svo hratt. Ég hef ekki alveg náð að melta allt enn.“

„Rest is history“

Aðspurður hvernig það kom til að hann fór að vinna með Kanye West segir K1d Krono að melódían sem Kanye endaði með hafi verið með þeim fyrstu sem hann sjálfur samdi.

„Ég bjó loop-u með Gavin Hadley í mars 2021 sem heitir On the Low. Þegar ég var svo að senda út loop-ur vikunnar á þeim tíma ákvað ég að remixa melódíuna og senda hana út aftur. Pródúser að nafni JW Lucas, sem var co-pródúser á laginu Xo Tour Life með Lil Uzi Vert og What’s Poppin með Jack Harlow, rakst á þessa loop-u frá mér. 

Hann greip hana, vann aðeins í henni, sendi það svo á teymið hans Kanye og rest is history!

Stöðugleiki og tengslanet

Krono segir að tengslanetið sé mjög mikilvægt í bransanum og því skiptir máli að kunna að koma sér á framfæri. Það hefur haft mikil áhrif á velgengni hans til þessa þar sem hann er duglegur að láta vita af sér og hafa samband við áhrifaríkt tónlistarfólk.

„Ég var að senda pródúserum DM á insta á hverjum einasta degi að spyrja um emailin hjá þeim svo ég gæti sent þeim loops.“ Listinn varð stöðugt lengri og þannig varð tengslanetið meira. „Ég hef nú þegar unnið með mörgum af topp tónlistarmönnum og pródúserum heimsins. Auðvitað Kanye West og Jack Harlow en líka stórum nöfnum á borð við Dababy, Future, Est Gee, Tyla Yaweh, Toosii, TM88, Cubeatz og mörgum fleirum.“

K1d Krono er eflaust með mörg járn í eldinum um þessar mundir og verður að segjast að lífið hans og starf sé ansi spennandi. Aðspurður að lokum um hvað sé framundan segir hann einfaldlega:

Ég stefni ekki í einhverja afmarkaða átt. Mig langar bara að halda áfram að vera stöðugt að gera tónlist og koma á fleiri verðmætum tengslum.

Tengdar fréttir

Kanye West boðar nýja plötu

Tónlistarmaðurinn Ye, betur þekktur sem Kanye West, boðaði formlega útgáfu nýrrar plötu á Instagramsíðu sinni fyrr í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×