Innlent

Bjarni Hall­dór að­stoðar Þor­gerði Katrínu

Atli Ísleifsson skrifar
Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar.
Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar.

Bjarni Halldór Janusson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns og þingmanns Viðreisnar.

Bjarni Halldór tekur við stöðunni af Maríu Rut Kristinsdóttur sem hafði gegnt stöðunni í fjögur ár. María Rut hefur verið ráðin kynningarstýra UN Women líkt og greint var frá í gær.

Bjarni Halldór segist mjög spenntur fyrir verkefninu. „Það er gaman að vera kominn aftur og fá að vinna með þessu frábæra fólki. Það eru ákveðin forréttindi að geta starfað við það sem ég hef ástríðu fyrir. Ég hlakka til komandi tíma og þó að starfið sé krefjandi er það ekki vandamál þegar áhuginn mun nýtast mér sem góður drifkraftur,“ segir Bjarni sem var að koma sér fyrir á skrifstofunni þegar fréttastofa náði tali af honum.

Bjarni Halldór er fæddur árið 1995 og rataði í fréttir í apríl 2017 þegar hann varð yngsti maðurinn til að taka sæti á Alþingi, þá 21 árs gamall og 142 dögum betur.

Bjarni hefur tekið þátt í starfi Viðreisnar frá árinu 2014 og var meðal fyrstu stofnenda flokksins og fyrsti forseti ungliðahreyfingarinnar. 

„Hann hlaut kjör sem varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi árið 2016 og tók sæti á þingi í tvígang árið 2017 og varð þá yngsti sitjandi þingmaður frá upphafi. Á meðan þingsetu sinni stóð lagði Bjarni fram þingsályktunartillögu um sálfræðiþjónustu í opinberum háskólum. Bjarni er með háskólagráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, diplómu á meistarastigi til kennsluréttinda frá sama skóla og lauk meistaranámi í stjórnmálaheimspeki frá Háskólanum í York í Bretlandi. Bjarni starfaði áður í byggingariðnaði sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá pípulagnaverktaka og einnig við borgaralega fermingarfræðslu í aukaverkum,“ segir í tilkynningu frá Bjarna.


Tengdar fréttir

Yngsti þingmaður sögunnar tekur sæti á Alþingi

Bjarni Halldór Janusson, varaþingmaður Viðreisnar, mun í dag taka sæti á Alþingi. fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra og verður Bjarni þar með yngsti þingmaður sögunnar til að setjast á þing en Alþingi kemur saman eftir páskahlé klukkan 15 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×