Handbolti

Selfyssingar vonast til að endurvekja stemmninguna frá úrslitakeppninni 2019

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Selfyssingar hafa aldrei orðið bikarmeistara og ekki komist í úrslitaleikinn í 29 ár.
Selfyssingar hafa aldrei orðið bikarmeistara og ekki komist í úrslitaleikinn í 29 ár. VÍSIR/VILHELM

KA var síðast í bikarúrslitaleik fyrir átján árum og Selfyssingar hafa beðið síðan 1993 eða í næstum því þrjátíu ár.

Undanúrslit Coca Cola bikars karla í handbolta verða spiluð á Ásvöllum í dag og búast má við tveimur skemmtilegum leikjum. Seinni leikurinn verður landsbyggðarslagur þegar KA og Selfoss mætast.

Selfoss og KA eru þekkt fyrir það að fá góðan stuðning í stúkunni og bæði liðin fara langt á þeirri stemmningu sem myndast. KA hefur þrisvar unnið bikarinn en Selfyssingar aldrei.

Fulltrúar liðanna tveggja mættu á kynningarfund fyrir leikina og þar tók Henry Birgir Gunnarsson viðtöl við menn.

„KA var síðast í bikarúrslitunum árið 2004 og það er því rosalega spennandi og skemmtilegt verkefni fram undan,“ sagði KA-maðurinn Einar Rafn Eiðsson sem missir reyndar af leiknum vegna meiðsla.

„Það mjög flott stemmning í gangi, bæði hjá okkur í liðinu sem og hjá öllu bæjarfélaginu. Ég vona það innilega að við náum að endurvekja stemmninguna í úrslitakeppninni 2019,“ sagði Hergeir Grímsson, fyrirliði Selfossliðsins.

„Bikarleikir eru svolítið öðruvísi heldur en deildin. Menn þurfa að koma vel gíraðir inn í leikina og svo er það gamla góða klisjan um spennustigið. Það þarf að vera rétt, ekki og hátt og ekki og lágt. Þetta er einn af skemmtilegustu leikjunum sem þú spilar,“ sagði Einar Rafn.

„Þetta verður bara stemmningsleikur. Ég hef spilað nokkum sinnum á móti KA og ég man ekki eftir leik sem var annað hvort jafntefli eða flautumark,“ sagði Hergeir.

Leikur Selfoss og KA fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 20.15 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×