Albert veikur heima þegar Genoa gerði enn eitt jafnteflið

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert ekki með vegna veikinda.
Albert ekki með vegna veikinda. vísir/getty

Genoa er óumdeilanlega jafntefliskóngarnir í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Í dag gerði liði markalaust jafntefli við Atalanta í Bergamo sem verða reyndar að teljast góð úrslit þar sem Atalanta er í 5.sæti á meðan Genoa er í næstneðsta sæti deildarinnar.

Þetta var hins vegar sjöunda jafntefli Genoa í röð og hefur liðið gert alls sextán jafntefli í 29 leikjum á tímabilinu.

Albert Guðmundsson lék ekki með liðinu í dag vegna veikinda.

Á sama tíma vann Udinese 0-1 sigur á AS Roma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira