Körfubolti

Durant skoraði 53 stig og reyndi svo að koma vitinu fyrir borgarstjóra New York

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant fagnar einni af mörgum körfum sínum fyrir Brooklyn Nets í leiknum í nótt.
Kevin Durant fagnar einni af mörgum körfum sínum fyrir Brooklyn Nets í leiknum í nótt. AP/Seth Wenig

Kevin Durant átti stórkostlegan leik þegar Brooklyn Nets marði sigur á New York Knicks í uppgjöri New York liðanna í NBA-deildinni. Borgarstjóri New York fékk síðan orð í eyra frá stjörnunni eftir leikinn.

Durant skoraði 53 stig og gaf 9 stoðsendingar í 110-107 sigri Brooklyn Nets á New York Knicks en hann skoraði þriggja stiga körfu sem kom Brooklyn endanlega yfir 56 sekúndum fyrir leikslok og kláraði síðan leikinn á vítalínunni.

Þetta var í sextugasta skipti sem Durant skorað fjörutíu stig og í annað skiptið á tímabilinu þar sem hann fer yfir fimmtíu stigin.

Kyrie Irving fagnaði liðsfélaga sínum, fyrst í stúkunni og svo niðri á gólfinu eftir leikinn. Hann mátti hins vegar ekki spila heimaleiki liðsins vegna bólusetningareglna í New York.

Andre Drummond kom næstur Durant með 18 stig og 10 fráköst en þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð. Auk þess að leika án Irving og nýja mannsins Ben Simmons þá missti Seth Curry einnig af leiknum. Það þurfti því súperframmistöðu frá Durant og hann brást ekki. Eftir leikinn var þó fáránleikinn við fjarveru Kyrie aðalmálið.

„Þetta er fáránlegt. Ég skil þetta hreinlega ekki. Það er eitthvað af fólki í höllinni sem er ekki bólusett, ekki satt,“ spurði Kevin Durant á blaðamannafundi eftir leikinn.

„Þetta er farið að líta út eins og einhver sér að reyna að sýna valdið sitt. Það er bara ekkert vit í þessu,“ sagði Durant og beindi að lokum orðum sínum til Eric Adams, borgarstjóra New York.

„Eric, þú verður að fara að finna út úr þessu. Þetta er farið að líta mjög illa út. Ekki síst í sjónvarpsleik þar sem hann getur komið inn í höllina og verið meðal áhorfanda en má ekki spila. Gerðu það fyrir okkur Eric,“ sagði Durant.

LeBron James komst nótt fyrstur allra í þrjátíu þúsund stiga, tíu þúsund frákasta og tíu þúsund stoðsendinga hópinn en það breytti ekki því að Los Angeles Lakers fékk samt enn einn skellinn. Topplið Phoenix Suns vann leikinn 140-111. James var með 31 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar en tíu þúsundasta stoðsendingin hans á NBA-ferlinum fór á Carmelo Anthony.

Devin Booker skoraði 30 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Phoenix og Deandre Ayton var með 23 stig og 16 fráköst á aðeins 27 mínútum. Suns liðið skoraði 79 stig í fyrri hálfleik og var þá komið 23 stigum yfir.

  • Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt:
  • Phoenix Suns - Los Angeles Lakers 140-111
  • Brooklyn Nets - New York Knicks 110-107
  • Detroit Pistons - Los Angeles Clippers 102-106
  • Boston Celtics - Dallas Mavericks 92-95
  • Orlando Magic - Philadelphia 76ers 114-116 (framlengt)
  • Atlanta Hawks - Indiana Pacers 131-128
  • New Orleans Pelicans - Houston Rockets 130-105
  • Oklahoma City Thunder - Memphis Grizzlies 118-125

Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×