Körfubolti

Curry meiddist og Golden State réð ekkert við Boston-liðið án hans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry meiddist eftir þessi samskipti við Marcus Smart sem lét heldur betur finna fyrir sér í nótt.
Stephen Curry meiddist eftir þessi samskipti við Marcus Smart sem lét heldur betur finna fyrir sér í nótt. AP/Jeff Chiu

Þetta var ekki góð nótt fyrir Golden State Warriors sem tapaði ekki aðeins illa á heimavelli heldur missti líka Stephen Curry meiddan af velli.

Jayson Tatum skoraði 26 stig og tók 12 fráköst þegar Boston Celtics vann 110-88 útisigur á Golden State Warriors. Boston líður vel í San Francisco því liðið hefur nú unnið fjóra útileiki í röð á móti Golden State.

Stærsta áhyggjuefni heimamanna voru þó meiðsli stjörnu Golden State - Steph Curry - nú þegar liðið var nýbúið að endurheimta Draymond Green úr meiðslum.

Curry meiddist á fæti þegar 4:19 voru eftir að öðrum leikhluta. Marcus Smart lenti á fæti hans. Curry var sárþjáður og yfirgaf völlinn. Smart lét Skvettubræðurna heldur betur finna fyrir sér því seinna fékk hann óíþróttamannslega villu fyrir brot á Klay Thompson.

Curry skoraði 47 stig á afmæli sínu tveimur dögum áður en í þessum leik var hann með fjóra tapaða og aðeins eina körfu. Curry hafði nefnilega aðeins skorað 3 stig á 14 mínútum þegar hann meiddist. Jordan Poole var stighæstur með 29 stig og skoraði 22 sig.

Boston Celtics liðið hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og liðið hefur alls unnið sextán af síðustu nítján leikjum. Liðið er enn í fjórða sætinu í Austurdeildinni en gæti hækkað sig enn frekar með sama áframhaldi.

Spencer Dinwiddie var hetja Dallas Mavericks í annað skiptið á stuttum tíma. Í nótt skoraði hann sigurkörfuna á móti Brooklyn Nets en hafði klárað Boston Celtics á sunnudaginn var.

Brooklyn-liðið vildi ekki leyfa Luka Doncic að taka síðasta skotið og hann fann Dinwiddie sem brást ekki. Hann tryggði Dallas 113-11 sigur. Dinwiddie er aðeins annar leikmaðurinn á tímabilinu með sigurkörfu í tveimur leikjum í röð á leiktíðinni en hinn er DeMar DeRozan hjá Chicago Bulls.

Doncic var með 37 stig, 9 fráköst og 9 stoðsendingar í leiknum og Dallas-liðið vann sinn áttunda sigur í síðustu níu leikjum. Dinwiddie skoraði 15 af 22 stigum sínum í lokaleikhlutanum.

Kevin Durant var með 23 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst en Brooklyn náði ekki að vinna fimmta leikinn í röð. Liðið lék áfram án Kyrie Irving á heimavelli sem hafði skoraði 60 stig í leiknum á undan.

Joel Embiid skoraði 35 stig, tók 17 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á 28 ára afmælisdaginn sinn þegar Philadelphia 76ers vann 118-114 útisigur á Cleveland Cavaliers. James Harden bætti við 21 stigi og 11 stoðsendingum.

Nikola Jokic var aðeins tveimur stoðsendingum frá nítjándu þrennu sinni á tímabilinu en hann skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 8 stoðsendingar á aðeins 26 mínútum þegar Denver Nuggets vann öruggan 127-109 sigur á Washington Wizards.

Los Angeles Lakers tapar öllum leikjum þessa dagana þar sem LeBron James skorar ekki fimmtíu stig og 19 stig frá James dugðu skammt í 124-104 tapi á móti Minnesota Timberwolves. James hitti aðeins úr 1 af 8 þriggja stiga skotum sínum og var með fleiri tapað (5) en stoðsendingar (4). Karl-Anthony Towns skoraði 30 stig fyrir Úlfana og Anthony Edwards var með 27 stig.

  • Úrslitin í NBA í nótt:
  • Golden State Warriors - Boston Celtics 88-110
  • Brooklyn Nets - Dallas Mavericks 111-113
  • Charlotte Hornets - Atlanta Hawks 116-106
  • Cleveland Cavaliers - Philadelphia 76ers 114-118
  • Washington Wizards - Denver Nuggets 109-127
  • New York Knicks - Portland Trail Blazers 128-98
  • Houston Rockets - Phoenix Suns 112-129
  • Minnesota Timberwolves - Los Angeles Lakers 124-104
  • San Antonio Spurs - Oklahoma City Thunder 122-120
  • Utah Jazz - Chicago Bulls 125-110
  • Sacramento Kings - Milwaukee Bucks 126-135
  • Los Angeles Clippers - Toronto Raptors 100-103
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×