Erlent

Putin líkir meðferð Vesturlanda á Rússum við ofsóknir nasista gegn gyðingum

Heimir Már Pétursson skrifar
Vladimir Putin forseti Rússlands segir Vesturlönd hafa sýnt sitt rétta eðli með ofsóknum gegn Rússum sem búa á Vesturlöndum.
Vladimir Putin forseti Rússlands segir Vesturlönd hafa sýnt sitt rétta eðli með ofsóknum gegn Rússum sem búa á Vesturlöndum. Mikhail Svetlov/Getty Images

Vonir eru bundnar við að fjöldi manns hafi lifað af sprengjuárás Rússa á leikhús í Mariupol í gær þar sem um þúsund manns höfðu leitað skjóls í loftvarnabyrgi í kjallara hússins. Úkraínuforseti segir markmið viðræðna við Rússa að átökum linni og fullveldi Úkraínu verði tryggt. Rússlandsforseti líkir meðhöndlun Vesturlanda á Rússum við ofsóknir nasista gegn gyðingum.

Vladimir Putin forseti Rússlands og menn í innsta valdakjarna hans eru æfir eftir að Joe Biden forseti Bandaríkjanna kallaði Putin stríðsglæpamann. Í móttöku í Hvítahúsinu í gær spurði blaðakona Biden þegar hann gekk framhjá henni  í mannmergð hvort hann teldi Putin vera stríðsglæpamann og forsetinn svaraði „nei“ og gekk framhjá.

Sama dag og Joe Biden forseti Bandaríkjanna skrifaði undir lög um 800 milljón dollara viðbótarstuðning við Úkraínu í gær, hitaði hann upp í orrahríðinni við Vladimir Putin þegar hann kallaði hann stríðsglæpamann.AP/Evan Vucci

 Svo var eins og forsetinn áttaði sig á spurningunni og hann snéri aftur til blaðakonunnar og sagði: „Um hvað varstu að spyrja mig“ og endurtók hún þá spurninguna.

„Já ég tel að hann sé stríðsglæpamaður,“ sagði Biden þá og gekk burt. Þar með var orrahríðin milli stórveldanna komin á annað plan.

Ekki stóð á viðbrögðum Putins og hirðar hans. Putin segir Rússa sæta ofsóknum í mörgum vestrænum ríkjum með sama hætti og gyðingar á tímum nasismans í Þýskalandi.

„Rússum er meinuðheilbrigðisþjónusta, börn þeirra eru rekin úr skólum og foreldarnir reknir úr vinnu. Þeir banna rússneska tónlist, menningu, bókmenntir. Þeir eru að reyna að þurrka Rússland út. Vesturlönd hafa fellt grímuna og sýnt sitt rétta eðli. Það er í beinu samhengi við ofsóknir þýskra nasista gegn gyðingum á fjórða áratug síðustu aldar,“ sagði Putin.

Vesturlönd væru heimsveldi lyga sem væri máttlaust gagnvart sannleikanum sem Rússar muni stöðugt koma á framfæri.

Innrás Rússa í Úkraínu hefur nú staðið yfir í þrjár vikur og valdið miklum mannlegum hörmungum og eyðileggingu. Þessi mynd er frá Kharkiv næst fjölmennustu borg landsins.AP/Pavel Dorogoy

Þótt fullyrt sé að framrás Rússa í Úkraínu sé stöðnuð halda þeir þó enn uppi stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á fjölmarga bæi og borgir. Í gær sprengdu þeir upp sögufrægt leikhús í Mariupol þar sem um þúsund manns höfðu leitað skjóls í loftvarnabyrgi í kjallara. Óttast var að mikill fjöldi fólks hefði fallið en byrgið virðist hafa haldið því í morgun voru björgunarsveitir að hjálpa fólki upp úr húsarústunum.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu hefur að undanförnu ávarpað breska þingið, Bandaríkjaþing og nú síðast í morgun ávarpaði hann neðri deild þýska sambandsþingsins.AP/Drew Angerer

Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseti segir friðarviðræðum verða haldið áfram en ítrekar að Úkraína þurfi enn á mikilli hernaðaraðstoð Vesturlanda að halda í stríðinu, auknum loftvarnabúnaði, herþotur og önnur vopn. Markmið friðarviðræðna væru kristaltær.

„Að enda stríðið, ná fram öryggistryggingum, tryggja fullveldi, endurheimta landfræðileg yfirráð, alvöru ábyrgðir fyrir land okkar, alvöru varnir fyrir land okkar,“ sagði forseti Úkraínu í ávarpi til þjóðar sinnar í gærkvöldi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×