Sagði „ógeðslegum“ spænskum fjölmiðlum að skammast sín Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. mars 2022 09:00 Gareth Bale minnti á sig með tveimur frábærum mörkum í sigri Wales á Austurríki. getty/Ian Cook Eftir að hafa verið kallaður sníkjudýr og fleira í þeim dúr í spænskum fjölmiðlum svaraði Gareth Bale fyrir sig með tveimur mörkum þegar Wales vann Austurríki, 2-1, í umspili um sæti á HM í gær.
Bale hefur afar lítið komið við sögu hjá Real Madrid á þessu tímabili og aðeins spilað samtals tvo klukkutíma síðasta hálfa árið. Bale er ekki á neinum lúsarlaunum hjá Real Madrid og blaðamaður Marca sagði að hann væri að mergsjúga félagið og kallaði hann sníkjudýr. Bale minnti á hversu góður hann er með tveimur glæsilegum mörkum í sigri Wales í gær. Walesverjar eru nú aðeins einum sigri frá því að komast á HM í fyrsta sinn síðan 1958. Eftir leikinn á Cardiff-leikvanginum var Bale spurður að því hvort hann væri með einhver skilaboð til spænskra fjölmiðla. „Ég þarf þess ekki. Ég þarf ekki að segja neitt. Það er tímasóun,“ sagði Bale en sendi svo spænsku pressunni tóninn. „Þetta er ógeðslegt. Þeir ættu að skammast sín. Ég stressa mig ekki yfir þessu.“ Bale hefur nú skorað 38 mörk fyrir velska landsliðið og er markahæstur í sögu þess. Hann hefur leikið 101 landsleik. Wales mætir annað hvort Úkraínu eða Skotlandi í úrslitaleik í umspilinu. Leikurinn fer fram í Cardiff, líklega í júní.
HM 2022 í Katar Spænski boltinn Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti „Ég finn lykt af ótta, ég sé eitthvað í augum hans“ Sport Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Fleiri fréttir Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Sjá meira