Enski boltinn

Alexis verstu kaup Man United síðan Sir Alex hætti: Maguire meðal fimm verstu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alexis Sánchez átti ekki sjö dagana sæla sem leikmaður Manchester United. Hann fékk þó vel borgað.
Alexis Sánchez átti ekki sjö dagana sæla sem leikmaður Manchester United. Hann fékk þó vel borgað. EPA-EFE/PETER POWELL

Síðan Sir Alex Ferguson ákvað að kalla þetta gott sem þjálfari Manchester United hefur félagið nánast verið í frjálsu falli. Alls hefur félagið fengið til sín 41 leikmann frá því Skotinn goðsagnakenndi hætti og segja má að flestir þeirra hafi sýnt lítið sem ekkert.

Sir Alex ákvað að hætta sem þjálfari Man United vorið 2013. Skildi hann við liðið sem Englandsmeistara en síðan hefur liðið ekki verið nálægt því að endurtaka leikinn.

Hér að neðan má sjá lista Daily Star yfir alla þann 41 leikmann sem félagið hefur fest kaup síðan Sir Alex hætti.

41. sæti. Alexis Sánchez

Kom vissulega í skiptum fyrir Henrikh Mkhitaryan (sem fór til Arsenal) en gríðarhá laun Sánchez, almennt getuleysi hans innan vallar og hversu illa það gekk að losa hann frá félaginu gerir hann að versu kaupum Man Utd í níu ár.

40. Ángel Di María

Kostaði Manchester United 59,7 milljónir punda er hann gekk til liðs við félagið frá Real Madríd. Hann var seldur á afslætti til París Saint-Germain ári síðar og hefur í kjölfarið nýtt öll tækifæri til að urða yfir félagið.EPA/PETER POWELL

39. Harry Maguire

Enski miðvörðurinn fær bronsið yfir verstu kaup félagsins undanfarin níu ár. Kostaði 78,3 milljónir punda og þrátt fyrir að byrja vel þá hefur honum fatast flugið að undanförnu. Er gagnrýndur nánast í hverri viku nú og virðist sem ferill hans hjá félaginu gæti verið í hættu með komu nýs þjálfara.EPA-EFE/ANDREW YATES

38. Aaron Wan-Bissaka 

Kostaði á einhvern ótrúlegan hátt 49,5 milljónir punda. Hefði átt að kosta 4,95 milljónir.

37. Falcao 

Kom á láni frá Monaco eftir erfið meiðsli.

36. Morgan Schneiderlin 

Kostaði 25 milljónir. Átt að leysa vandræði liðsins á miðjunni.

35. Paul Pogba 

Var í smástund dýrasti leikmaður heims. Hefur sýnt hvers hann er megnugur við og við en aldrei til lengri tíma. Verður samningslaus í sumar.EPA-EFE/Aleksandra Szmigiel

34. Donny Van de Beek 

Kom frá Ajax. Kostaði 35 milljónir punda. Virðist enginn vita hvað hann er að gera hjá félaginu. Er á láni hjá Everton. 

33. Memphis Depay 

Kostaði rúmlega 26 milljónir punda. Átti að vera rosa sprækur fram á við en gat lítið. Er í dag hjá Barcelona.

32. Marouane Fellaini 

Var keyptur af David Moyes frá sínu gamla liði Everton á 27,5 milljónir punda. Þjónaði liðinu vel en var aldrei tekinn í sátt. 

31. Romelu Lukaku 

Keyptur frá Everton á 75 milljónir punda. Fann sig í raun aldrei á Old Trafford.

30. Bastian Schweinsteiger 

Gamall og lúinn er hann kom frá Bayern. Kostaði 6,8 milljónir punda.

29. Marcos Rojo 

Að Argentínumaðurinn hafi aldrei fengið rautt í treyju Man United er ótrúlegt. Kostaði 16 milljónir punda og kann ekki að rista brauð.EPA/TIM KEETON

28. Andy Kellett 

Hver?

27. Víctor Valdés 

Kom til þess að sitja á bekknum fyrir David De Gea.

26. og 25. Lee Grant og Tom Heaton

Lee Grant og Tom Heaton. Komu báðir til að verða þriðji markvörður liðsins. Sá fyrrnefndi er í dag fjórði kostur eftir komu Heaton.Ash Donelon/Getty Images

24. Matteo Darmian 

Helst minnst fyrir skelfilega skeggrót. Varð Ítalíumeistari með Inter Milan á síðustu leiktíð.

23. Guillermo Varela 

Fyrstu kaup félagsins eftir að Sir Alex hætti. Var ungur og efnilegur en náði aldrei að láta ljós sitt skína.

22. Daniel James 

Orkumikill en entist stutt á Old Trafford. Er nú kominn til Leeds United.Chris Brunskill/Getty Images

21. Facundo Pellestri 

Var keyptur að því virðist bara til að kaupa einhvern. Er á láni á Spáni í dag.

20. Alex Telles 

Sparkaði í rassinn á Luke Shaw. Kostaði litlar 13,5 milljónir punda.

19. Nemanja Matić 

Hefur átt sína spretti þó hann fari hægt yfir í dag. 

18. Amad Diallo 

Sama og með Pellestrin nema Diallo kostaði 19 milljónir punda.

17. Daley Blind 

Fjölhæfur leikmaður sem skilaði sínu. Kostaði aðeins 14 milljónir punda er hann kom.EPA-EFE/NIGEL RODDIS

16. Victor Lindelöf

Líkt og aðrir miðverðir á þessum lista hefur hann átt erfitt uppdráttar. 

15. Henrikh Mkhitaryan

Gekk lítið upp hjá Mkhitaryan sem var á endanum skipt til Arsenal þrátt fyrir að kosta 26 milljónir er hann kom frá Borussia Dortmund.

14. Eric Bailly 

Alltaf meiddur.

13. Juan Mata 

Hefur skorað nokkur mögnuð mörk fyrir félagið og væri mögulega ofar hefði hann verið seldur áður en hann hætti alveg að geta hlaupið. 

12. Diogo Dalot 

Hefði verið töluvert neðar ef ekki væri fyrir Ralf Rangnick.

11. Fred 

Brasilíumennirnir Fred og Alex Telles. Segja má að sá fyrrnefndi hafi farið í gegnum endurnýjun lífdaga með komu Ralf Rangnick.Alex Livesey/Getty Images

10. Edinson Cavani 

Óhemju ofarlega fyrir mann sem er alltaf meiddur.

9. Anthonty Martial 

Svipað og hjá Pogba. Franskur, kostaði sitt og hefur átt sín augnablik. 

8. Sergio Romero

Ætti í raun að vera í 1. sæti. Mögulega besti varamarkvörður allra tíma.

7. Raphaël Varane

Tíminn mun leiða í ljós hversu góð kaup franski miðvörðurinn verður. Kostaði 36,5 milljónir en hefur verið mikið frá.

6. Ander Herrera 

Með betri kaupum félagsins.  Leikur með París Saint-Germain.vísir/getty

5. Cristiano Ronaldo 

Gæti verið ofar en gæti einnig verið neðar, fer í raun eftir við hverju fólk bjóst þegar Portúgalinn sneri aftur á Old Trafford.

4. Zlatan Ibrahimović 

Meiðsli komu í veg fyrir að Zlatan hefði eignað sér fyrsta sætið á þessum lista. Það og slök færanýting en Svíinn fékk urmul færa á fyrsta tímabili sínu í Manchester.

3. Luke Shaw 

Nálægt því að vera seldur oftar en einu sinni. Fann sig vel undir stjórn Ole Gunnar Solskjær en hefur átt erfitt uppdráttar eftir vonbrigðin á Evrópumótinu síðasta sumar.Ash Donelon/Getty

2. Jadon Sancho 

Einn besti leikmaður liðsins í dag eftir slaka byrjun. Er ef til vill full ofarlega fyrir leikmann sem kostaði 76,5 milljónir punda og er enn á sínu fyrsta tímabili.EPA-EFE/Domenech Castello

1. Bruno Fernandes

Fáir aðrir sem komu til greina. Umturnaði liðinu eftir að hann kom og er nú að fóta sig í nýju leikkerfi með nýjum þjálfara.Robbie Jay Barratt/Getty Images



Fleiri fréttir

Sjá meira


×