Íslenski boltinn

Kefla­vík í leikmannaleit: Ó­víst hversu mikið Nacho og Rúnar Þór verða með

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það er mikil vinna framundan hjá Sigurði Ragnari þó stutt sé í mót.
Það er mikil vinna framundan hjá Sigurði Ragnari þó stutt sé í mót. Vísir/Hulda Margrét

Keflavík er í óðaönn að leita að leikmönnum fyrir komandi átök í Bestu deild karla í knattspyrnu. Tímabilið hefst þann 18. apríl en þjálfari Keflavíkur telur að það vanti allavega tvo leikmenn til viðbótar í leikmannahóp liðsins.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, ræddi við Fótbolti.net um stöðu mála suður með sjó. Þar kom fram að spænski varnarmaðurinn Nacho Heras er enn frá vegna meiðsla og þá er alls óvíst hvort vinstri bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson verði með í sumar.

„Við erum að skoða styrkingar, vonumst til að geta tilkynnt um eitthvað vonandi á næstu dögum. Við þurfum að stækka hópinn okkar. Við viljum bæði fá inn varnar- og kantmann, ekki verra ef leikmenn eru fjölhæfir,“ sagði Sigurður Ragnar meðal annars við Fótbolti.net í dag.

Hann nefnir einnig að þar sem Keflavík hefur ekki sama fjármagn og mörg önnur lið í Bestu deildinni og því sé gott að fá inn fjölhæfa leikmenn.

Varðandi meiðslin hjá Nacho þá er hann byrjaður að skokka en ekkert vitað um hvenær hann má snúa aftur til æfinga. Spænski varnarmaðurinn er með skemmdir í brjóski í hné sem er erfitt að eiga við. Rúnar Þór hefur svo verið að glíma við meiðsli í síðan um mitt síðasta ár.

„Hann er að glíma við eitthvað á nárasvæðinu, var með beinmar og verið stífur á mjöðm,“ sagði Sigurður Ragnar um stöðuna á þessum öfluga vinstri bakverði. Ef hann myndi ná að spila í sumar yrði það bónus að mati þjálfarans.

Marley Blair (til hægri) er ekki lengur leikmaður Keflavíkur.Vísir/Hulda Margrét

Þá er Adam Árni Róbertsson einnig meiddur en ásamt þremenningunum þá hafa Marley Blair og Ástbjörn Þórðarson yfirgefið Keflavík frá því að síðustu leiktíð lauk. Því er Keflavík í leit að tveimur mönnum til að fylla skarð þeirra tveggja.

Keflavík endaði í 10. sæti á síðustu leiktíð með 21 stig, einu stigi meira en HK sem féll með 20 stig. Keflavík fær verðugt verkefni í 1. umferð Bestu deildarinnar en liðið heimsækir þá Breiðablik.


Besta deildin er á Stöð 2 Sport en nýtt keppnistímabil hefst 18. apríl. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×