Körfubolti

Svona líta átta liða úrslit Subway-deildarinnar út

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Deildarmeistarar Njarðvíkur munu kljást við KR-inga í átta liða úrslitum
Deildarmeistarar Njarðvíkur munu kljást við KR-inga í átta liða úrslitum Vísir/Bára Dröfn

Lokaumferð Subway-deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld þegar heil umferð var spiluð á sama tíma. Njarðvíkingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn og Keflvíkingar misstu af heimaleikjarétti.

Nýkrýndir deildarmeistarar Njarðvíkur mæta KR-ingum í átta liða úrslitum. KR-ingar skriðu inn í úrslitakeppnina þrátt fyrir tap gegn Valsmönnum í kvöld og eiga erfitt verkefni fyrir höndum.

Ríkjandi Íslandsmeistarar Þórs frá Þorlákshöfn enduðu í öðru sæti deildarinnar og mæta því Grindvíkingum sem höfnuðu í sjöunda sæti. Liðin mættust í kvöld þar sem Þórsarar unnu nokkuð öruggan sigur, 105-93.

Þá mætast Valsmenn og Stjarnan og að lokum Tindastóll og Keflavík. Tap Keflvíkinga í kvöld þýðir að liðið féll niður í fimmta sæti og Stólarnir eru því með heimaleikjarétt í því einvígi.

Viðureignirnar í átta liða úrslitum

Njarðvík - KR

Þór Þorlákshöfn - Grindavík

Valur - Stjarnan

Tindastóll - Keflavík

Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×