Fótbolti

Sjáðu mörkin er Breiðablik vann Lengjubikarinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Breiðablik er Lengjubikarmeistari kvenna árið 2022.
Breiðablik er Lengjubikarmeistari kvenna árið 2022. Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik varð Lengjubikarmeistari kvenna með 2-1 sigri gegn Stjörnunni í gær.

Hildur Antonsdóttir kom Blikum yfir strax á áttundu mínútu eftir fyrirgjöf frá Helenu Ósk Hálfdánardóttur, en Jasmín Erla Ingadóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna tíu mínútum síðar.

Taylor Marie Ziemer tryggði Blikum svo sigurinn með marki eftir mikinn darraðardans í teignum. Lokatölur urðu 2-1, Blikastúlkum í vil, og þær eru því Lengjubikarmeistarar árið 2022.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Sjáðu mörkin er Breiðablik vann Lengjubikarinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×