Lífið

„Þetta var það rómantískasta sem ég hefði getað ímyndað mér“

Elísabet Hanna skrifar
Ben bað Jen í búbblu baði.
Ben bað Jen í búbblu baði. Getty/Rich Fury

Jennifer Lopez deildi með aðdáendum sínum í fréttabréfi hvernig unnusti hennar Ben Affleck bað hennar. Hún segir bónorðið ekki hafa verið yfirdrifið á neinn hátt en á sama tíma hafi það verið það rómantískasta sem hún hefði getað ímyndað sér.

Sagði aðdáendum frá bónorðinu

Síðasta föstudag deildi hún því að þau væru trúlofuð á ný, átján árum eftir að þau slitu fyrstu trúlofuninni sinni í janúar 2004. Þetta er sjötta trúlofun JLo en sú þriðja hjá Ben með fyrra skiptinu hjá þeim Bennifer meðtöldu. 

Í nýju fréttabréfi frá On the JLO sem hún gefur út fer hún nákvæmlega í gegnum það hvernig bónorðið var, sýndi aðdáendum hringinn og útskýrði litinn á honum. Fyrsta línan í fréttabréfinu frá henni var:

„Hefurðu ímyndað þér að þinn stærsti draumur gæti ræst?“

Bað hennar í búbblu baði

Hún heldur áfram og lýsir því hvernig hún hafi verið stödd á sínum uppáhalds stað á jörðinni, í búbblu baði og hvernig fallega ástin hennar hafi farið niður á hné og beðið hennar. Hún segir bónorðið hafa komið sér algjörlega að óvarri.

„Ég horfði bara í augun hans brosandi og grátandi á sama tíma að reyna að átta mig á þeirri staðreynd að eftir tuttugu ár væri þetta að gerast aftur. Ég var bókstaflega orðlaus og hann spurði mig „er þetta já?“ og ég sagði JÁ auðvitað er þetta JÁ“

Brosti og grét

JLo heldur áfram að lýsa stóru stundinni og segist hafa brosað hringinn og grátið allt á sama tíma á meðan hún fann fyrir hamingju og leið eins og hún væri heil.

„Þetta var ekkert yfirdrifið en þetta var það rómantískasta sem ég hefði getað ímyndað mér. Bara rólegt laugardagskvöld heima, tvær manneskjur að lofa því að vera alltaf til staðar fyrir hvort annað,“

segir hún um kvöldið. Hún bætir því við að þau séu tvær heppnar manneskjur sem séu að fá annað tækifæri á sannri ást. Þau eru búin að vera saman frá því í maí á síðasta ári og valdi Ben grænan hring sem er happaliturinn hennar. 

Hringurinn er grænn og glæsilegur.Skjáskot/J-LO fréttabréfið.

Eldri og vitrari

Jennifer sagði nýlega í viðtali að í dag væru þau eldri og vitrari en þau voru síðast og búi yfir meiri reynslu. Heimildir herma að nýtrúlofaða parið ætli að hafa börnin sín stóran part af athöfninni.

JLo á í dag tvíburana Emme og Max með fyrrverandi eiginmanni sínum Marc Anthony. Ben á börnin Violet, Seraphina og Samuel með fyrrverandi eiginkonu sinni Jennifer Garner sem hann var giftur í þrettán ár og eru þau miklir vinir enn í dag. 

„Við eigum börn og við virðum hvort annað.. Við lifum lífinu okkar á þann hátt sem við getum verið stolt af og börnin okkar geta verið stolt af,“

segir Jennifer Lopez um framtíðina saman.


Tengdar fréttir

Bennifer saman á rauða dreglinum á ný

Jennifer Lopez og Ben Affleck stigu í fyrsta sinn saman á rauða dregilinn í Feneyjum í gær. Það er eftir að turtildúfurnar hafa farið leynt með að þau hafi tekið saman aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.