Lorenzo Insigne kom heimamönnum í Napoli yfir með marki af vítapunktinum strax á 11. mínútu eftir að Roger Ibanez hafði brotið á Hirving Lozano innan vítateigs.
Þetta reyndist eina mark fyrri háflleiksins og því var staðan 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.
Raunar reyndist þetta eina mark venjulegs leiktíma því jöfnunarmarkið leit ekki dagsins ljós fyrr en komið var inn í uppbótartíma síðari hálfleiks. Þar var á ferðinni varamaðurinn Stephan El Shaarawy þegar hann batt endahnútinn á vel útfærða sókn og tryggði Rómverjum eitt stig.
Niðurstaðan varð 1-1 jafntefli og titilvonir Napoli fara því minnkandi. Liðið situr í þriðja sæti deildarinnar með 67 stig þegar liðið á þrjá leiki eftir, fjórum stigum minna en AC Milan sem trónir á toppnum.
Roma situr hins vegar í fimmta sæti með 58 stig og heldur enn í veika von um að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.