Innlent

Skoða hvort eitthvað liggi að baki árásinni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Árásin var gerð í miðbænum í nótt.
Árásin var gerð í miðbænum í nótt. Vísir/Vilhelm

Lögregla rannsakar hvort árás sem gerð var á sautján ára pilt í miðborginni í nótt hafi verið að yfirlögðu ráði eða tilviljunarkennd. 

Fram kemur í dagbók lögreglu eftir nóttina að árásarmennirnir hafi flúið vettvang en pilturinn fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var pilturinn með meðvitund en alltaf sé ítrustu varúðar gætt þegar um höfuðhögg er að ræða. 

Engum vopnum var beitt í árásinni. Þá sé ekki ljóst hvort árásin hafi verið gerð af tilviljun eða hvort eitthvað meira liggi þar að baki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×