Innlent

Bein út­sending: Lofts­lags­dagurinn 2022

Atli Ísleifsson skrifar
Dagskráin stendur frá klukkan 10:30 til 16.
Dagskráin stendur frá klukkan 10:30 til 16. Umhverfisstofnun

Loftslagsdagurinn 2022 fer fram í Hörpu milli klukkan 10:30 og 16 í dag þar sem meðal annars verður fjallað um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, neysludrifna losun, innra kolefnisverð, náttúrumiðaðar lausnir og aðlögun og orkuskipti. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Í tilkynningu kemur fram að Umhverfisstofnun standi fyrir Loftslagsdeginum ásamt nokkrum samstarfsstofnunum. „Þar koma saman margir af fremstu sérfræðingum þjóðarinnar í loftslagsmálum og útskýra umræðuna á mannamáli.

Á dagskrá verða yfir tuttugu spennandi erindi frá Umhverfisstofnun, Veðurstofunni, Orkustofnun, Hagstofunni, Landgræðslunni, Háskóla Íslands og fleiri aðilum.“

Hægt er að fylgjast með dagskránni í spilaranum að neðan:

Dagskrá 

Staðsetning: Harpa, Norðurljós, 3. maí 10:30-16:00

Fundarstjóri: Stefán Gíslason

10:30 Upptaktur og ávörp

  • Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
  • Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra

10:50 Hver er losun Íslands og hvaða tól höfum við til að rýna hana?

  • Elva Rakel Jónsdóttir, sviðstjóri á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis, Umhverfisstofnun
  • Nicole Keller, teymisstjóri á sviði viði loftslags og hringrásarhagkerfis, Umhverfisstofnun
  • Áhrif skógræktar á bindingu og losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Arnór Snorrason, Skógfræðingur/deildarstjóri Loftslagsdeildar á Mógilsá, rannsóknasviði Skógræktarinnar.
  • Landnotkun og loftslagsbókhaldið. Jóhann Þórsson, vistfræðingur og teymisstjóri fagteymis loftslags og jarðvegs hjá Landgræðslunni
  • Hvernig lítur framtíðin út? Ásta Karen Helgadóttir, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds á sviði loftslagsmála og græns samfélags, Umhverfisstofnun

12:10 Loftslagslausnir í sýndarveruleika

  • Upplifunarhönnuðirnir í Gagarín

12:50 Losunarbókhald í stærra samhengi

  • Neysludrifið kolefnisspor. Áróra Árnadóttir, Nýdoktor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Grænni byggðar
  • Gæði hagkerfis á öðrum forsendum en framleiðni; Losunarbókhald hagkerfisins (AEA). Þorsteinn Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands
  • Grænt bókhald ríkisstofnana – Hvað höfum við lært? Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslagsmála og græns samfélags, Umhverfisstofnun
  • Innra kolefnisverð Landsvirkjunar, tól til upplýstrar ákvörðunartöku. Ívar Kristinn Jasonarson, Sérfræðingur, deild loftslags og umhverfis, Landsvirkjun
  • Guðni Elísson, prófessor í bókmenntafræði, Háskóla Íslands

14:00 Lausnir og aðlögun: Hvert erum við komin og hvernig er hægt að bregðast við afleiðingunum?

  • Aðlögun að loftslagsbreytingum á Íslandi. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar, Veðurstofa Íslands
  • Vistkerfi hafsins á tímum víðtækra umhverfisbreytinga. Hrönn Egilsdóttir, Sviðstjóri umhverfissviðs, Hafrannsóknastofnun
  • Skógrækt til kolefnisförgunar. Edda Sigurdís Oddsdóttir, Sviðsstjóri rannsóknasviðs Skógrækarinnar
  • Náttúrumiðaðar lausnir – til mótvægis og aðlögunar að loftslagsbreytingum. Þórunn Wolfram, Sviðsstjóri sviðs sjálfbærni og loftslags hjá Landgræðslunni
  • Starri Heiðmarsson, fléttufræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands

15:15 Orkuskipti

  • Horft til framtíðar. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Orkustofnun
  • Orkuskiptin. Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðstjóri orkuskipta og lofstslagsmála hjá Orkustofnun
  • 1000 sundlaugar af olíu. Jón Ásgeir H. Þorvaldsson, verkefnastjóri í orkuskiptum, Orkustofnun
  • Samhengi lífs og lofts. Halldór Þorgeirsson, plöntuvistfræðingur og formaður Loftslagsráðs



Fleiri fréttir

Sjá meira


×