Innlent

Bein útsending: Viðreisn kynnir kosningaáherslur í borginni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Viðreisn í borginni kynnir stefnumál sín fyrir komandi kosningar.
Viðreisn í borginni kynnir stefnumál sín fyrir komandi kosningar. Viðreisn

Viðreisn hefur boðað til kynningafundar á stefnu sinni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Fundurinn fer fram í garðinum hjá Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita flokksins í Reykjavík og hefst klukkan 15. 

Fundurinn verður sýndur í beinu streymi hér á Vísi og mun Viðreisn sýna spilin fyrir komandi borgarstjórnarkosningar og kynna sín helstu stefnumál, kostnað við þau og útreikninga. 

Í spilaranum hér að neðan verður hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu og neðst í fréttinni má finna helstu áherslupunkta Viðreisnar í kosningunum. 

Her má lesa stefnu Viðreisnar í Reykjavík. 

Skýr sýn fyrir börnin 

  • Við viljum að 5 ára börn fái frítt í leikskóla 6 tíma á dag.
  • Við viljum auka faglegt frelsi kennara og skóla svo ákvarðanir séu teknar næst nemendum.
  • Við viljum að stærri vinnustaðir geti rekið eigin leikskóla.
  • Við viljum skólakerfi sem er samkeppnishæft á alþjóðavísu.
  • Við viljum að það verði frítt í alla grunnskóla, óháð rekstrarformi, til að fólk hafi meira val.
  • Við viljum betri samþættingu skóla- og frístundastarfs til að bæta vinnudag barna.

Skýr sýn fyrir atvinnulífið

  • Við ætlum að lækka fasteignaskatta til að það verði ódýrara að reka fyrirtæki í Reykjavík.
  • Við ætlum að reka borgarsjóð án halla frá miðju kjörtímabili.
  • Við ætlum að hagræða í rekstri og styðjum fækkun ráða, nefnda og sviða.
  • Við viljum ekki að Reykjavíkurborg standi í samkeppnisrekstri, heldur auka einkarekstur með útboðum og selja eignir.
  • Við ætlum að halda áfram að einfalda kerfið með stafrænni þjónustu.

Skýr sýn um betri hverfi

  • Við ætlum að halda áfram þeirri metuppbyggingu sem hefur átt sér stað í Reykjavík.
  • Við ætlum að fylgja ráðleggingum OECD og einfalda alla umgjörð byggingarmála til að það verði fljótlegra og ódýrara að byggja í Reykjavík.
  • Við viljum áfram að þétta byggð og reisa ný hverfi í Skerjafirði, Ártúnshöfða og á Keldum.
  • Við viljum flugvöllurinn í Vatnsmýri víki og þar komi í stað þétt, blönduð byggð.
  • Við ætlum að hefja byggingu Borgarlínu sem mun auka val Reykvíkinga.
  • Við ætlum að fjölga deilibílum og viljum að þeir verði aðgengilegir í öllum hverfum Reykjavíkur.
  • Við viljum stækka göngusvæði borginni og búa til almenningsgarð á Skólavörðuholti.
  • Við styðjum Sundabraut sem styttir leiðir fyrir alla samgöngumáta.
  • Við viljum skrá umferðarslys á dýrum í Reykjavík.

Skýr sýn um betri velferðarborg

  • Við styðjum fjölbreytt rekstrarform í velferðarþjónustu.
  • Við viljum fjölga sértækum búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk um 100 á kjörtímabilinu.
  • Við viljum sjá fleiri leiktæki fyrir fötluð börn svo öll geti notið sín í borgarlandinu.
  • Við ætlum að fjölga NPA-samningum í takt við áætlanir ríkisins.
  • Við viljum meira valfrelsi í matarþjónustu eldra fólks.

Skýr sýn um menningu og íþróttir

  • Við ætlum að móta stefnu um næturhagkerfið og lengja opnunartíma skemmtistaða á afmörkuðum svæðum til að minnka ónæði í miðborginni.
  • Við viljum að hinsegin félagsmiðstöðin verði fjármögnuð að fullu með samstarfi allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
  • Við viljum jafna laun í reykvískum íþróttum.
  • Við viljum að fleiri bókasöfn séu opin á kvöldin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×